Vöruskiptajöfnuður
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 40,8 milljarða króna og inn fyrir 34,4 milljarða króna fob (37,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um rúma 6,3 milljarða króna. Í apríl 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 0,4 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu fjóra mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 176,8 milljarða króna en inn fyrir 139,1 milljarð króna fob (150,8 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 37,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 28,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 9,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 6,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,1% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 40,1% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.
Innflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings tæpum 1,1 milljarði eða 0,8% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.
Vöruskiptin við útlönd apríl 2010 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2010 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-apríl | ||||
Apríl | Janúar-apríl | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 32.865 | 40.767 | 166.525 | 176.772 | 6,2 |
Innflutningur alls fob | 32.494 | 34.425 | 138.046 | 139.119 | 0,8 |
Vöruskiptajöfnuður | 371 | 6.342 | 28.479 | 37.653 |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-apríl 2009 og 2010 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-apríl | ||||
Apríl | Janúar-apríl | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 31.543,4 | 40.766,9 | 147.406,2 | 176.771,9 | 6,2 |
Sjávarafurðir | 14.994,8 | 17.140,1 | 57.625,6 | 67.123,3 | 3,1 |
Landbúnaðarvörur | 476,7 | 696,5 | 2.647,2 | 2.936,8 | -1,8 |
Iðnaðarvörur | 14.558,5 | 21.474,0 | 64.200,1 | 101.613,0 | 40,1 |
Aðrar vörur | 1.513,4 | 1.456,3 | 22.933,3 | 5.098,8 | -80,3 |
Innflutningur alls fob | 31.187,2 | 34.425,3 | 122.196,7 | 139.119,2 | 0,8 |
Matvörur og drykkjarvörur | 3.210,2 | 3.135,8 | 11.698,2 | 13.664,5 | 3,4 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 11.671,2 | 14.056,2 | 42.587,6 | 50.278,9 | 4,5 |
Eldsneyti og smurolíur | 2.724,4 | 2.230,5 | 12.775,9 | 13.961,1 | -3,3 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 7.016,2 | 8.173,7 | 27.471,1 | 33.116,3 | 6,7 |
Flutningatæki | 1.941,6 | 2.130,3 | 10.047,7 | 7.467,8 | -34,2 |
Neysluvörur ót.a. | 4.582,1 | 4.672,3 | 17.417,6 | 20.492,7 | 4,1 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 41,5 | 26,5 | 198,6 | 137,8 | -38,6 |
Vöruskiptajöfnuður | 356,2 | 6.341,6 | 25.209,6 | 37.652,6 | . |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 13,0% hærra mánuðina janúar–apríl 2010 en sömu mánuði fyrra árs.
Í apríl 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 4,2% hærra en í apríl árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.