FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MAÍ 2010


Vöruskiptajöfnuður
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 40,8 milljarða króna og inn fyrir 34,4 milljarða króna fob (37,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um rúma 6,3 milljarða króna. Í apríl 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 0,4 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu fjóra mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 176,8 milljarða króna en inn fyrir 139,1 milljarð króna fob (150,8 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 37,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 28,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 9,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 6,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,1% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 40,1% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Innflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings tæpum 1,1 milljarði eða 0,8% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.

Vöruskiptin við útlönd apríl 2010
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-apríl
Apríl  Janúar-apríl
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 32.865 40.767 166.525 176.772 6,2
Innflutningur alls fob 32.494 34.425 138.046 139.119 0,8
Vöruskiptajöfnuður 371 6.342 28.479 37.653  

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-apríl 2009 og 2010
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-apríl
Apríl Janúar-apríl
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 31.543,4 40.766,9 147.406,2 176.771,9 6,2
Sjávarafurðir 14.994,8 17.140,1 57.625,6 67.123,3 3,1
Landbúnaðarvörur 476,7 696,5 2.647,2 2.936,8 -1,8
Iðnaðarvörur 14.558,5 21.474,0 64.200,1 101.613,0 40,1
Aðrar vörur 1.513,4 1.456,3 22.933,3 5.098,8 -80,3
Innflutningur alls fob 31.187,2 34.425,3 122.196,7 139.119,2 0,8
Matvörur og drykkjarvörur 3.210,2 3.135,8 11.698,2 13.664,5 3,4
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 11.671,2 14.056,2 42.587,6 50.278,9 4,5
Eldsneyti og smurolíur 2.724,4 2.230,5 12.775,9 13.961,1 -3,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.016,2 8.173,7 27.471,1 33.116,3 6,7
Flutningatæki 1.941,6 2.130,3 10.047,7 7.467,8 -34,2
Neysluvörur ót.a. 4.582,1 4.672,3 17.417,6 20.492,7 4,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 41,5 26,5 198,6 137,8 -38,6
Vöruskiptajöfnuður 356,2 6.341,6 25.209,6 37.652,6 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 13,0% hærra mánuðina janúar–apríl 2010 en sömu mánuði fyrra árs.

Í apríl 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 4,2% hærra en í apríl árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.