Vöruskiptajöfnuður
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 42,0 milljarða króna og inn fyrir tæpa 36,0 milljarða króna fob (tæpa 39,0 milljarða króna cif). Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 6,0 milljarða króna. Í apríl 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 6,9 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu fjóra mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 184,1 milljarð króna en inn fyrir 149,9 milljarða króna fob (161,6 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 34,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 35,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 1,3 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 20,2 milljörðum eða 12,3% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 36,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,7% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 55,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,0% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða og skipum og flugvélum.
Innflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 21,5 milljörðum eða 16,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti varð í öllum liðum innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru.
Vöruskiptin við útlönd apríl 2011 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2010 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-apríl | ||||
Apríl | Janúar-apríl | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 39.029 | 41.990 | 163.918 | 184.126 | 12,3 |
Innflutningur alls fob | 32.091 | 35.961 | 128.400 | 149.892 | 16,7 |
Vöruskiptajöfnuður | 6.937 | 6.029 | 35.518 | 34.233 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-apríl 2010 og 2011 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-janúar | ||||
Apríl | Janúar-apríl | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 41.095,7 | 41.989,9 | 176.730,9 | 184.125,8 | 12,3 |
Sjávarafurðir | 17.148,9 | 16.949,1 | 67.138,5 | 67.674,3 | 8,7 |
Landbúnaðarvörur | 658,3 | 545,7 | 2.545,3 | 3.136,0 | 32,8 |
Iðnaðarvörur | 21.832,6 | 23.268,8 | 101.979,6 | 102.165,8 | 8,0 |
Aðrar vörur | 1.455,9 | 1.226,3 | 5.067,5 | 11.149,7 | . |
Innflutningur alls fob | 33.791,0 | 35.960,8 | 138.436,9 | 149.892,4 | 16,7 |
Matvörur og drykkjarvörur | 3.137,7 | 3.475,6 | 13.666,6 | 13.186,7 | 4,0 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 13.513,2 | 15.470,8 | 49.714,5 | 55.903,4 | 21,2 |
Eldsneyti og smurolíur | 2.229,2 | 1.944,6 | 13.959,8 | 16.448,9 | 27,0 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 8.061,1 | 7.285,2 | 33.015,5 | 33.657,9 | 9,9 |
Flutningatæki | 2.126,8 | 2.641,7 | 7.438,3 | 10.505,6 | 52,3 |
Neysluvörur ót.a. | 4.696,5 | 5.090,0 | 20.504,5 | 20.054,6 | 5,4 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 26,5 | 52,8 | 137,6 | 135,4 | 6,1 |
Vöruskiptajöfnuður | 7.304,7 | 6.029,1 | 38.294,0 | 34.233,4 | . |
Athygli skal vakin á því að samhliða þessari birtingu eru niðurstöður eldri ára endurskoðaðar. Í gögnum fyrir árið 2006 var vantalinn innflutningur á flugvél sem nam tæpum 5 milljörðum og í gögnum áranna 2006, 2008 og 2009 var útflutningur á hákarlalýsi ranglega flokkaður sem hvallýsi.
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 7,2% lægra mánuðina janúar–apríl 2011 en sömu mánuði fyrra árs.
Í apríl 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 5,0% lægra en í apríl árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.
Talnaefni