FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. JANÚAR 2010


Vöruskiptajöfnuður
Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2009 fluttar út vörur fyrir 497,1 milljarð króna en inn fyrir 409,9 milljarða króna fob (445,4 milljarð króna cif). Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd samkvæmt bráðabirgðatölum, reiknað á fob verðmæti, sem nam 87,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 8,9 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 96,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir 42,0 milljarða króna og inn fyrir 35,0 milljarða króna fob (38,0 milljarða króna cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því samkvæmt bráðabirgðatölum hagstæð um 7,0 milljarða króna. Í desember 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 26,4 milljarða króna á sama gengi¹.

Í bráðabirgðatölum fyrir árið hefur verið leiðrétt fyrir verslun með skip og flugvélar á árinu 2009.
 
Útflutningur
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2009 var heildarverðmæti vöruútflutnings 20,6% minna en á sama tíma árið áður á föstu gengi¹ . Iðnaðarvörur voru 48,2% alls útflutnings og er þetta annað árið í röð, frá því að skráning á árlegum útflutningi hófst með reglubundnum hætti árið 1862, sem hlutdeild iðnaðarvara er hærri en sjávarafurða. Verðmæti iðnaðarvara var 26,5% minna á árinu 2009 en árið áður og vó ál þyngst í útflutningnum. Sjávarafurðir voru 42,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,2% minna en á sama tíma árið áður. Stærsti liður útfluttra sjávarafurða var fryst fiskflök og dróst útflutningur þeirra saman frá árinu 2008. Sölur á skipum og flugvélum drógust saman á árinu.

Innflutningur
Samkvæmt bráðabirgðatölum var verðmæti vöruinnflutnings á árinu 2009 35,4% minna á föstu gengi¹  en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings 2009 voru hrá- og rekstrarvara með 30,5% hlutdeild og fjárfestingarvara með 21,6% hlutdeild. Samdráttur varð í nær öllum liðum innflutnings en af einstökum liðum varð mestur samdráttur, í krónum talið, í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, í innflutningi á fjárfestingavöru og á flutningatækjum, aðallega fólksbílum og flutningatækjum til atvinnurekstrar.

Vöruskiptin við útlönd janúar-desember 2009
Millj. kr á gengi ársins 2009 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-desember
Desember  Janúar-desember
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 59.064 42.042 625.872 497.066 -20,6
Innflutningur alls fob 32.669 35.007 634.807 409.874 -35,4
Vöruskiptajöfnuður 26.395 7.035 -8.935 87.192 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-desember 2008 og 2009
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-desember
desember Janúar-desember
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 53.846,6 42.042,3 466.859,5 497.065,9 -20,6
Sjávarafurðir 20.840,0 16.374,4 171.348,7 208.578,9 -9,2
Landbúnaðarvörur 1.336,9 859,0 6.426,6 7.674,4 -10,9
Iðnaðarvörur 28.924,9 23.653,6 243.147,2 239.494,8 -26,5
Aðrar vörur 2.744,7 1.155,3 45.937,0 41.317,9 -32,9
Innflutningur alls fob 29.783,0 35.007,1 473.524,7 409.874,3 -35,4
Matvörur og drykkjarvörur 3.167,0 3.900,0 37.383,4 41.758,3 -16,7
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 11.149,4 8.983,7 148.577,5 124.884,5 -37,3
Eldsneyti og smurolíur 2.140,8 3.777,1 58.254,6 51.046,5 -34,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.267,3 7.987,6 102.477,8 88.367,5 -35,7
Flutningatæki 1.888,0 4.845,7 60.395,9 39.713,5 -51,0
Neysluvörur ót.a. 4.154,9 5.504,7 66.071,9 63.573,2 -28,2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 15,5 8,4 363,6 530,8 8,9
Vöruskiptajöfnuður 24.063,6 7.035,2 -6.665,2 87.191,7 ·


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 34,1% hærra mánuðina janúar–desember 2009 en sömu mánuði fyrra árs.

Í desember 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 9,7% hærra en í desember árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir árið 2009 verða gefnar út í mars 2010.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.