Vöruskiptajöfnuður
Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,4 milljarða króna og inn fyrir 30,4 milljarða króna fob (33,2 milljarða króna cif). Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um tæpa 14 milljarða króna. Í febrúar 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 13,1 milljarð króna á sama gengi¹.
Fyrstu tvo mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 83,2 milljarða króna en inn fyrir 62,5 milljarða króna fob (68,1 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 20,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 10,4 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 10,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 0,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 35,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,6% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru tæp 60% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 33,4% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum og útflutningi sjávarafurða.
Innflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 10,1 milljarði eða 13,9% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í flutningatækjum, hrá- og rekstrarvöru og eldsneyti.
Vöruskiptin við útlönd febrúar 2010 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2010 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-febrúar | ||||
Febrúar | Janúar-febrúar | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 46.710 | 44.399 | 83.026 | 83.150 | 0,1 |
Innflutningur alls fob | 33.604 | 30.409 | 72.654 | 62.531 | -13,9 |
Vöruskiptajöfnuður | 13.106 | 13.990 | 10.372 | 20.619 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-febrúar 2009 og 2010 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-febrúar | ||||
Febrúar | Janúar-febrúar | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 38.670,0 | 44.398,6 | 72.240,6 | 83.150,1 | 0,1 |
Sjávarafurðir | 14.150,3 | 16.351,4 | 27.449,3 | 29.467,4 | -6,6 |
Landbúnaðarvörur | 699,1 | 850,0 | 1.548,3 | 1.555,1 | -12,6 |
Iðnaðarvörur | 14.779,4 | 26.136,1 | 32.288,6 | 49.512,8 | 33,4 |
Aðrar vörur | 9.041,2 | 1.061,2 | 10.954,4 | 2.614,8 | -79,2 |
Innflutningur alls fob | 27.820,1 | 30.409,0 | 63.216,2 | 62.531,1 | -13,9 |
Matvörur og drykkjarvörur | 2.894,1 | 3.100,5 | 5.486,7 | 5.971,5 | -5,3 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 9.709,8 | 12.914,2 | 22.845,6 | 23.257,2 | -11,4 |
Eldsneyti og smurolíur | 2.746,0 | 1.510,4 | 7.893,2 | 6.422,2 | -29,2 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 6.423,6 | 6.493,3 | 13.321,0 | 14.617,4 | -4,5 |
Flutningatæki | 2.044,2 | 1.387,8 | 5.907,2 | 2.750,5 | -59,5 |
Neysluvörur ót.a. | 3.915,9 | 4.945,7 | 7.648,8 | 9.421,0 | 7,2 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 86,6 | 57,2 | 113,8 | 91,4 | -30,2 |
Vöruskiptajöfnuður | 10.849,9 | 13.989,7 | 9.024,3 | 20.619,0 | . |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 14,9% hærra mánuðina janúar–febrúar 2010 en sömu mánuði fyrra árs.
Í febrúar 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 20,8% hærra en í febrúar árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.
Talnaefni