FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. APRÍL 2011


Vöruskiptajöfnuður
Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 42,7 milljarða króna og inn fyrir 32,4 milljarða króna fob (35,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 10,3 milljarða króna. Í febrúar 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 12,8 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu tvo mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 85,1 milljarð króna en inn fyrir tæpa 67,0 milljarða króna fob (72,1 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 18,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 17,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 0,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 9,7 milljörðum eða 12,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 35,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,9% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru tæp 60% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 12,7% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða.


Innflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 9,4 milljörðum eða 16,3 % meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á eldsneyti, fjárfestingarvöru og hrá- og rekstrarvöru.

Vöruskiptin við útlönd febrúar 2011
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-febrúar
Febrúar  Janúar-febrúar
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 40.858 42.738 75.388 85.085 12,9
Innflutningur alls fob 28.053 32.413 57.603 66.976 16,3
Vöruskiptajöfnuður 12.805 10.325 17.785 18.109 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-febrúar 2010 og 2011
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-janúar
Febrúar Janúar-febrúar
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 44.266,3 42.737,8 82.871,5 85.085,1 12,9
Sjávarafurðir 16.362,1 15.188,9 29.486,9 30.016,4 11,9
Landbúnaðarvörur 716,5 814,7 1.242,5 1.887,0 67,0
Iðnaðarvörur 26.141,6 25.554,0 49.519,4 50.757,7 12,7
Aðrar vörur 900,6 1.180,3 2.622,7 2.424,0 1,6
Innflutningur alls fob 30.393,2 32.413,3 63.320,9 66.975,8 16,3
Matvörur og drykkjarvörur 3.100,5 3.118,8 5.956,2 5.758,4 6,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 12.917,9 12.387,0 23.325,3 23.526,4 10,9
Eldsneyti og smurolíur 1.510,4 3.939,5 6.422,2 9.137,8 56,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 6.473,4 6.829,9 14.588,4 16.445,0 23,9
Flutningatæki 1.384,9 1.513,7 3.514,9 3.432,2 7,3
Neysluvörur ót.a. 4.949,1 4.580,0 9.422,6 8.611,6 0,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 57,2 44,3 91,4 64,5 -22,4
Vöruskiptajöfnuður 13.873,1 10.324,5 19.550,6 18.109,2 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 9,0% lægra mánuðina janúar–febrúar 2011 en sömu mánuði fyrra árs.

Í febrúar 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 7,7% lægra en í febrúar árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.