Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 44,0 milljarða króna og inn fyrir 39,3 milljarða króna fob (42,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 4,6 milljarða króna. Í júlí 2009 voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 0,4 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu sjö mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 321,4 milljarða króna en inn fyrir 252,9 milljarða króna fob (274,5 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 68,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 41,3 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,2 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 15,0% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,8% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 42,4% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.
Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 14,8 milljörðum eða 6,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, fjárfestingarvöru og eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.
Vöruskiptin við útlönd júlí 2010 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2010 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-júlí | ||||
Júlí | Janúar-júlí | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 38.022 | 43.956 | 279.415 | 321.391 | 15,0 |
Innflutningur alls fob | 37.650 | 39.342 | 238.109 | 252.900 | 6,2 |
Vöruskiptajöfnuður | 372 | 4.614 | 41.307 | 68.491 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júlí 2009 og 2010 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júlí | ||||
Júlí | Janúar-júlí | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 41.536,5 | 43.955,6 | 268.307,5 | 321.391,3 | 15,0 |
Sjávarafurðir | 18.218,2 | 17.889,3 | 113.183,3 | 124.666,8 | 5,8 |
Landbúnaðarvörur | 602,9 | 353,4 | 4.245,4 | 4.468,6 | 1,1 |
Iðnaðarvörur | 21.365,3 | 24.965,3 | 124.007,8 | 183.937,3 | 42,4 |
Aðrar vörur | 1.350,1 | 747,7 | 26.871,1 | 8.318,6 | -70,3 |
Innflutningur alls fob | 41.129,8 | 39.341,7 | 228.642,8 | 252.900,1 | 6,2 |
Matvörur og drykkjarvörur | 4.198,8 | 3.693,7 | 23.321,2 | 24.880,4 | 2,4 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 11.262,6 | 13.758,8 | 73.446,2 | 87.601,4 | 14,5 |
Eldsneyti og smurolíur | 6.254,7 | 7.402,9 | 27.391,0 | 31.338,8 | 9,9 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 7.169,5 | 7.625,7 | 48.958,2 | 58.980,3 | 15,7 |
Flutningatæki | 6.580,0 | 2.121,6 | 22.000,6 | 14.590,8 | -36,3 |
Neysluvörur ót.a. | 5.638,0 | 4.701,3 | 33.226,9 | 35.140,9 | 1,6 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 26,2 | 37,7 | 298,8 | 367,6 | 18,1 |
Vöruskiptajöfnuður | 406,6 | 4.613,9 | 39.664,7 | 68.491,2 | . |
¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 4,1% hærra mánuðina janúar–júlí 2010 en sömu mánuði fyrra árs.
Í júlí 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 8,5% lægra en í júlí árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.