Vöruskiptajöfnuður
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 48,0 milljarða króna og inn fyrir 39,3 milljarða króna fob (42,7 milljarð króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 8,7 milljarða króna. Í júní 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 6,2 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu sex mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 277,4 milljarða króna en inn fyrir 213,6 milljarða króna fob (232,0 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 63,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 41,9 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 22,0 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 14,6% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,3% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 45,1% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.
Innflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 13,4 milljörðum eða 6,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.
Vöruskiptin við útlönd júní 2010 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2010 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-júní | ||||
Júní | Janúar-júní | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 37.721 | 47.971 | 242.078 | 277.436 | 14,6 |
Innflutningur alls fob | 31.569 | 39.313 | 200.170 | 213.577 | 6,7 |
Vöruskiptajöfnuður | 6.152 | 8.658 | 41.908 | 63.858 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júní 2009 og 2010 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júní | ||||
Júní | Janúar-júní | ||||
2009 | 2010 | 2009 | 2010 | ||
Útflutningur alls fob | 40.630,2 | 47.970,8 | 226.771,0 | 277.435,7 | 14,6 |
Sjávarafurðir | 19.414,2 | 19.503,2 | 94.965,1 | 106.777,6 | 5,3 |
Landbúnaðarvörur | 485,7 | 586,7 | 3.642,5 | 4.115,2 | 5,8 |
Iðnaðarvörur | 19.299,7 | 26.904,1 | 102.642,5 | 158.972,0 | 45,1 |
Aðrar vörur | 1.430,5 | 976,8 | 25.521,0 | 7.570,9 | -72,2 |
Innflutningur alls fob | 34.003,5 | 39.313,3 | 187.513,0 | 213.577,3 | 6,7 |
Matvörur og drykkjarvörur | 4.024,7 | 3.823,3 | 19.122,4 | 21.186,5 | 3,8 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 11.183,5 | 13.480,9 | 62.183,6 | 73.855,0 | 11,3 |
Eldsneyti og smurolíur | 3.082,6 | 3.849,2 | 21.136,2 | 23.935,8 | 6,1 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 7.290,3 | 10.248,0 | 41.788,6 | 51.352,9 | 15,1 |
Flutningatæki | 3.321,4 | 2.876,1 | 15.420,6 | 12.469,1 | -24,3 |
Neysluvörur ót.a. | 5.051,9 | 4.907,9 | 27.588,9 | 30.448,1 | 3,4 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 49,1 | 128,0 | 272,7 | 329,9 | 13,3 |
Vöruskiptajöfnuður | 6.626,7 | 8.657,5 | 39.258,1 | 63.858,4 | . |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 6,7% hærra mánuðina janúar–júní 2010 en sömu mánuði fyrra árs.
Í júní 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 7,2% lægra en í júní árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.