Vöruskiptajöfnuður
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,9 milljarða króna og inn fyrir 43,1 milljarð króna fob (46,2 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 1,8 milljarða króna. Í júní 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 11,7 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu sex mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 285,0 milljarða króna en inn fyrir 242,8 milljarða króna fob (261,5 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 42,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 63,2 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21,0 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 18,4 milljörðum eða 6,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 37,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,5% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 57% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,9% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og kísiljárns. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða og skipum og flugvélum.
Innflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 39,4 milljörðum eða 19,4% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og flutningatækjum en einnig varð aukning í innflutningi á fjárfestingarvörum og neysluvörum.
Vöruskiptin við útlönd júní 2011 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2011 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-júní | ||||
Júní | Janúar-júní | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 51.948 | 44.874 | 266.652 | 285.012 | 6,9 |
Innflutningur alls fob | 40.237 | 43.098 | 203.410 | 242.817 | 19,4 |
Vöruskiptajöfnuður | 11.712 | 1.776 | 63.241 | 42.196 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júní 2010 og 2011 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júní | ||||
Júní | Janúar-júní | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 50.671,3 | 44.873,8 | 279.714,1 | 285.012,1 | 6,9 |
Sjávarafurðir | 19.508,7 | 19.026,1 | 106.792,8 | 105.356,4 | 3,5 |
Landbúnaðarvörur | 586,7 | 483,0 | 3.706,4 | 4.193,7 | 18,7 |
Iðnaðarvörur | 26.898,7 | 24.392,0 | 158.975,0 | 162.070,7 | 6,9 |
Aðrar vörur | 3.677,2 | 972,8 | 10.240,0 | 13.391,2 | 37,2 |
Innflutningur alls fob | 39.247,5 | 43.098,3 | 213.375,0 | 242.816,6 | 19,4 |
Matvörur og drykkjarvörur | 3.807,4 | 4.675,3 | 21.170,6 | 22.610,4 | 12,0 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 13.497,9 | 14.230,9 | 73.858,7 | 85.773,3 | 21,8 |
Eldsneyti og smurolíur | 3.849,2 | 5.988,3 | 23.935,9 | 30.795,8 | 35,0 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 10.180,5 | 9.052,5 | 51.190,5 | 53.399,5 | 9,4 |
Flutningatæki | 2.874,5 | 3.820,5 | 12.441,2 | 18.590,3 | 56,7 |
Neysluvörur ót.a. | 4.910,5 | 5.235,9 | 30.449,4 | 31.307,3 | 7,8 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 127,5 | 95,1 | 328,8 | 339,9 | 8,4 |
Vöruskiptajöfnuður | 11.423,8 | 1.775,5 | 66.339,1 | 42.195,6 | · |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 4,7% lægra mánuðina janúar–júní 2011 en sömu mánuði fyrra árs.
Í júní 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 2,5% hærra en í júní árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.
Talnaefni