FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. ÁGÚST 2011


Vöruskiptajöfnuður
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 44,9 milljarða króna og inn fyrir 43,1 milljarð króna fob (46,2 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 1,8 milljarða króna. Í júní 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 11,7 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu sex mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 285,0 milljarða króna en inn fyrir 242,8 milljarða króna fob (261,5 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 42,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 63,2 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 21,0 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 18,4 milljörðum eða 6,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 37,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,5% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 57% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,9% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og kísiljárns. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða og skipum og flugvélum.

Innflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 39,4 milljörðum eða 19,4% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og flutningatækjum en einnig varð aukning í innflutningi á fjárfestingarvörum og neysluvörum.

Vöruskiptin við útlönd júní 2011
Millj. kr á gengi ársins 2011 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-júní
Júní  Janúar-júní
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 51.948 44.874 266.652 285.012 6,9
Innflutningur alls fob 40.237 43.098 203.410 242.817 19,4
Vöruskiptajöfnuður 11.712 1.776 63.241 42.196 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júní 2010 og 2011
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júní
Júní Janúar-júní
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 50.671,3 44.873,8 279.714,1 285.012,1 6,9
Sjávarafurðir 19.508,7 19.026,1 106.792,8 105.356,4 3,5
Landbúnaðarvörur 586,7 483,0 3.706,4 4.193,7 18,7
Iðnaðarvörur 26.898,7 24.392,0 158.975,0 162.070,7 6,9
Aðrar vörur 3.677,2 972,8 10.240,0 13.391,2 37,2
Innflutningur alls fob 39.247,5 43.098,3 213.375,0 242.816,6 19,4
Matvörur og drykkjarvörur 3.807,4 4.675,3 21.170,6 22.610,4 12,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.497,9 14.230,9 73.858,7 85.773,3 21,8
Eldsneyti og smurolíur 3.849,2 5.988,3 23.935,9 30.795,8 35,0
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.180,5 9.052,5 51.190,5 53.399,5 9,4
Flutningatæki 2.874,5 3.820,5 12.441,2 18.590,3 56,7
Neysluvörur ót.a. 4.910,5 5.235,9 30.449,4 31.307,3 7,8
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 127,5 95,1 328,8 339,9 8,4
Vöruskiptajöfnuður 11.423,8 1.775,5 66.339,1 42.195,6 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 4,7% lægra mánuðina janúar–júní 2011 en sömu mánuði fyrra árs.

Í júní 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 2,5% hærra en í júní árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.