FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. JÚNÍ 2010


Vöruskiptajöfnuður
Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 52,3 milljarða króna og inn fyrir 35,7 milljarða króna fob (39,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um rúma 16,6 milljarða króna. Í maí 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 7,3 milljarða króna á sama gengi.¹

Fyrstu fimm mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 229,5 milljarða króna en inn fyrir 174,6 milljarða króna fob (189,7 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 54,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 35,9 milljarða á sama gengi.¹ Vöruskiptajöfnuðurinn var því 19,0 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 12,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,1% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 44,2% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig varð aukning í  útflutningi sjávarafurða en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Innflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 5,9 milljörðum eða 3,5% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingarvöru en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.

Vöruskiptin við útlönd maí 2010
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-maí
Maí  Janúar-maí
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 37.937 52.326 204.550 229.465 12,2
Innflutningur alls fob 30.668 35.680 168.692 174.607 3,5
Vöruskiptajöfnuður 7.269 16.647 35.859 54.858 .

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-maí 2009 og 2010
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-maí
Maí Janúar-maí
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 38.734,6 52.326,4 186.140,8 229.464,9 12,2
Sjávarafurðir 17.925,2 20.142,7 75.550,8 87.274,3 5,1
Landbúnaðarvörur 509,5 591,7 3.156,7 3.528,5 1,7
Iðnaðarvörur 19.142,7 30.096,7 83.342,8 132.068,0 44,2
Aðrar vörur 1.157,2 1.495,3 24.090,5 6.594,0 -75,1
Innflutningur alls fob 31.312,8 35.679,9 153.509,5 174.606,6 3,5
Matvörur og drykkjarvörur 3.399,4 3.696,6 15.097,7 17.363,0 4,7
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 8.412,5 10.636,0 51.000,1 60.714,5 8,3
Eldsneyti og smurolíur 5.277,8 6.126,9 18.053,7 20.086,7 1,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.027,2 7.998,2 34.498,3 41.109,8 8,4
Flutningatæki 2.051,5 2.127,0 12.099,2 9.592,9 -27,9
Neysluvörur ót.a. 5.119,4 5.031,0 22.537,0 25.537,7 3,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 24,9 64,1 223,6 201,9 -17,8
Vöruskiptajöfnuður 7.421,8 16.646,5 32.631,4 54.858,3 ·


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 9,9% hærra mánuðina janúar–maí 2010 en sömu mánuði fyrra árs.

Í maí 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 2,1% lægra en í maí árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.