Vöruskiptajöfnuður
Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 56,7 milljarða króna og inn fyrir 49,9 milljarða króna fob (53,7 milljarða króna cif). Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 6,8 milljarða króna. Í maí 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 16,5 milljarða króna á sama gengi.¹
Fyrstu fimm mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 240,8 milljarða króna en inn fyrir 199,7 milljarða króna fob (215,3 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 41,0 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 51,6 milljarða á sama gengi.¹ Vöruskiptajöfnuðurinn var því 10,6 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 25,5 milljörðum eða 11,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 35,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,2% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,5% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða og skipum og flugvélum.
Innflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 36,1 milljarði eða 22,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti varð í öllum liðum innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru.
Vöruskiptin við útlönd maí 2011 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2010 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-maí | ||||
Maí | Janúar-maí | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 51.888 | 56.654 | 215.232 | 240.778 | 11,9 |
Innflutningur alls fob | 35.402 | 49.865 | 163.628 | 199.731 | 22,1 |
Vöruskiptajöfnuður | 16.486 | 6.789 | 51.604 | 41.048 | . |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 6,0% lægra mánuðina janúar-maí 2011 en sömu mánuði fyrra árs.
Í maí 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 0,8% lægra en í maí árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.
Talnaefni