FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. APRÍL 2010


Vöruskiptajöfnuðu
r
Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 52,9 milljarða króna og inn fyrir 41,4 milljarða króna fob (44,7 milljarða króna cif). Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 11,5 milljarða króna. Í mars 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 18,6 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu þrjá mánuðina 2010 voru fluttar út vörur fyrir 136,0 milljarða króna en inn fyrir 104,7 milljarða króna fob (113,6 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 31,3 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um tæpa 28,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 2,6 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruútflutnings 1,5% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 36,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,3% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 58,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 39,5% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en samdráttur varð í útflutningi á skipum og flugvélum.

Innflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2010 var verðmæti vöruinnflutnings 0,6 milljörðum eða 0,6% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Smávægileg aukning var í innflutningi fjárfestingarvara og neysluvara en á móti kom samdráttur í innflutningi á flutningatækjum.

Vöruskiptin við útlönd mars 2010
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-mars
Mars  Janúar-mars
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 51.173 52.854 134.053 136.004 1,5
Innflutningur alls fob 32.604 41.389 105.298 104.658 -0,6
Vöruskiptajöfnuður 18.569 11.465 28.755 31.346 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-mars 2009 og 2010
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-mars
Mars Janúar-mars
  2009 2010 2009 2010
Útflutningur alls fob 43.622,3 52.853,9 115.862,9 136.004,0 1,5
Sjávarafurðir 15.181,6 20.514,7 42.630,9 49.982,0 1,3
Landbúnaðarvörur 622,1 685,2 2.170,5 2.240,4 -10,8
Iðnaðarvörur 17.353,1 30.626,4 49.641,6 80.139,2 39,5
Aðrar vörur 10.465,5 1.027,6 21.419,9 3.642,4 -85,3
Innflutningur alls fob 27.793,3 41.388,8 91.009,5 104.657,8 -0,6
Matvörur og drykkjarvörur 3.001,4 4.585,2 8.488,0 10.541,3 7,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 8.070,8 12.901,7 30.916,4 36.173,0 1,1
Eldsneyti og smurolíur 2.158,3 5.308,4 10.051,5 11.730,6 0,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.134,0 10.356,1 20.454,9 24.948,1 5,4
Flutningatæki 2.198,8 1.822,3 8.106,0 5.338,8 -43,1
Neysluvörur ót.a. 5.186,7 6.395,2 12.835,5 15.814,5 6,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 43,3 19,9 157,1 111,3 -38,8
Vöruskiptajöfnuður 15.829,0 11.465,0 24.853,4 31.346,2 .

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 15,7% hærra mánuðina janúar–mars 2010 en sömu mánuði fyrra árs.

Í mars 2010 var meðalverð erlends gjaldeyris 17,3% hærra en í mars árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.