FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. MAÍ 2011


Vöruskiptajöfnuður
Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 51,3 milljarða króna og inn fyrir tæpa 45,0 milljarða króna fob (48,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 6,3 milljarða króna. Í mars 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 10,8 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu þrjá mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 136,4 milljarða króna en inn fyrir tæpa 112,0 milljarða króna fob (120,6 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 24,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 28,6 milljarða á sama gengi¹.
Vöruskiptajöfnuðurinn var því 4,1 milljarði króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 11,5 milljörðum eða 9,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 37,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 10,1% meira en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 57,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 6,9% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða.

Innflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 15,5 milljörðum eða 16,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og fjárfestingarvöru.

Vöruskiptin við útlönd mars 2011
Millj. kr á gengi ársins 2010 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-mars
Mars  Janúar-mars
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 49.714 51.275 124.961 136.432 9,2
Innflutningur alls fob 38.936 44.992 96.410 111.956 16,1
Vöruskiptajöfnuður 10.778 6.283 28.551 24.476 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-mars 2010 og 2011
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-janúar
Mars Janúar-mars
  2010 2011 2010 2011
Útflutningur alls fob 52.763,7 51.275,5 135.635,2 136.432,2 9,2
Sjávarafurðir 20.502,7 20.708,8 49.989,6 50.725,1 10,1
Landbúnaðarvörur 644,5 696,8 1.887,0 2.583,9 48,6
Iðnaðarvörur 30.627,6 28.061,6 80.146,9 78.903,5 6,9
Aðrar vörur 936,9 1.808,3 3.611,6 4.219,6 26,8
Innflutningur alls fob 41.325,0 44.992,3 104.645,9 111.956,4 16,1
Matvörur og drykkjarvörur 4.572,7 3.953,6 10.528,9 9.711,1 0,1
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 12.876,0 16.916,0 36.201,3 40.432,2 21,2
Eldsneyti og smurolíur 5.308,4 5.366,5 11.730,6 14.504,3 34,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.366,0 9.927,6 24.954,4 26.371,9 14,7
Flutningatæki 1.796,6 2.457,3 5.311,5 5.889,3 20,3
Neysluvörur ót.a. 6.385,5 6.353,2 15.808,1 14.965,1 2,8
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 19,7 18,0 111,0 82,5 -19,3
Vöruskiptajöfnuður 11.438,8 6.283,2 30.989,3 24.475,8 .


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 7,9% lægra mánuðina janúar–mars 2011 en sömu mánuði fyrra árs.

Í mars 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 5,8% lægra en í mars árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.