Vöruskiptajöfnuður
Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 52,7 milljarða króna og inn fyrir 44,6 milljarða króna fob (tæpa 48,0 milljarða króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 8,0 milljarða króna. Í október 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 11,6 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu tíu mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 512,6 milljarða króna en inn fyrir 423,1 milljarð króna fob (455,0 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 89,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 98,2 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því tæpum 8,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 55,8 milljörðum eða 12,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 40,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,2% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 54,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 10,6% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða, aðallega á frystum heilum fiski.
Innflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 64,5 milljörðum eða 18,0% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti og fjárfestingarvöru.
Vöruskiptin við útlönd október 2011 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2011 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-október | ||||
Október | Janúar-október | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 48.720 | 52.678 | 456.758 | 512.590 | 12,2 |
Innflutningur alls fob | 37.137 | 44.642 | 358.571 | 423.060 | 18,0 |
Vöruskiptajöfnuður | 11.583 | 8.036 | 98.187 | 89.530 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-október 2010 og 2011 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-október | ||||
Október | Janúar-október | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 47.036,2 | 52.678,3 | 462.352,7 | 512.590,4 | 12,2 |
Sjávarafurðir | 20.093,9 | 25.118,1 | 183.961,8 | 205.780,1 | 13,2 |
Landbúnaðarvörur | 1.027,1 | 1.376,7 | 6.011,4 | 7.259,5 | 22,2 |
Iðnaðarvörur | 24.928,1 | 24.574,3 | 256.595,5 | 280.423,9 | 10,6 |
Aðrar vörur | 987,1 | 1.609,2 | 15.784,0 | 19.126,9 | 22,7 |
Innflutningur alls fob | 35.853,3 | 44.641,8 | 362.963,1 | 423.059,9 | 18,0 |
Matvörur og drykkjarvörur | 3.595,0 | 4.432,4 | 35.493,6 | 39.942,3 | 13,9 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 11.959,6 | 13.827,4 | 123.512,3 | 141.999,5 | 16,4 |
Eldsneyti og smurolíur | 4.297,0 | 6.430,7 | 47.832,8 | 64.254,9 | 36,0 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 8.128,6 | 11.707,2 | 82.283,8 | 92.815,2 | 14,2 |
Flutningatæki | 1.836,5 | 2.237,5 | 20.620,5 | 28.666,7 | 40,7 |
Neysluvörur ót.a. | 6.005,3 | 5.987,6 | 52.757,8 | 54.851,1 | 5,2 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 31,4 | 19,1 | 462,3 | 530,2 | 16,1 |
Vöruskiptajöfnuður | 11.182,9 | 8.036,5 | 99.389,7 | 89.530,5 | . |
¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,2% lægra mánuðina janúar–október 2011 en sömu mánuði fyrra árs.
Í október 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 3,6% hærra en í október árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.
Talnaefni