FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. SEPTEMBER 2015

Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 47,1 milljarð króna og inn fyrir 48,9 milljarða króna fob (52,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 1,8 milljarða króna. Í ágúst 2014 voru vöruskiptin hagstæð um 2,3 milljarða króna á gengi hvors árs¹.

Fyrstu átta mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir tæpa 432,3 milljarða króna en inn fyrir rúma 440,6 milljarða króna fob (470,3 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam tæpum 8,4 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti, en á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 5,3 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 3,1 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 57,9 milljörðum eða 15,5% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 54,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 21,5% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli. Sjávarafurðir voru 41,4% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 15,3% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.

Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 61 milljarði eða 16,1% hærra, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla. Á móti dróst innflutningur á eldsneyti saman.  

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-ágúst 2014 og 2015
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % jan.-ágúst
  Ágúst Jan.-ágúst
  2014 2015 2014 2015
           
Útflutningur alls fob 47.893,7 47.109,9 374.375,7 432.280,6 15,5
Sjávarafurðir 20.636,3 18.491,7 155.079,2 178.855,6 15,3
Landbúnaðarvörur 798,4 886,6 6.570,9 8.564,9 30,3
Iðnaðarvörur 25.358,9 25.357,9 192.547,1 233.991,8 21,5
Aðrar vörur 1.100,1 2.373,8 20.178,4 10.868,2 -46,1
           
Innflutningur alls fob 45.562,3 48.903,4 379.686,2 440.642,1 16,1
Matvörur og drykkjarvörur 4.741,1 5.755,6 36.165,9 45.037,1 24,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 9.776,4 14.415,6 104.412,6 129.580,6 24,1
Eldsneyti og smurolíur 6.705,8 6.505,1 64.924,0 57.077,8 -12,1
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 10.077,6 11.172,6 82.697,5 88.054,2 6,5
Flutningatæki 8.692,0 4.467,1 45.152,3 68.565,5 51,9
Neysluvörur ót.a. 5.437,2 6.326,9 45.698,2 51.213,7 12,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 132,3 260,4 635,8 1.113,2 75,1
           
Vöruskiptajöfnuður 2.331,4 -1.793,5 -5.310,5 -8.361,6 .

¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.


Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.