FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. OKTÓBER 2015

Vöruskiptajöfnuður
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir rúma 47,8 milljarða króna og inn fyrir tæpa 54,3 milljarða króna fob (57,9 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 6,4 milljarða króna. Í september 2014 voru vöruskiptin óhagstæð um 10 milljarða króna á gengi hvors árs¹.

Fyrstu níu mánuði ársins 2015 voru fluttar út vörur fyrir 480,1 milljarð króna en inn fyrir 494,8 milljarða króna fob (528,2 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptum við útlönd sem nam 14,7 milljörðum króna, reiknað á fob verðmæti. Á sama tíma árið áður voru vöruskiptin óhagstæð um 15,3 milljarða á gengi hvors árs¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 0,6 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2015 var verðmæti vöruútflutnings 50,7 milljörðum hærra eða 11,8%, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 16,2% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á áli og álafurðum. Sjávarafurðir voru 41,9% alls vöruútflutnings og var verðmæti þeirra 12,1% hærra en á sama tíma árið áður, aðallega vegna útflutnings á fiskimjöli.

Innflutningur
Fyrstu þrjá ársfjórðunga ársins 2015 var verðmæti vöruinnflutnings 50,1 milljarði hærra eða 11,3%, á gengi hvors árs¹, en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hrá- og rekstrarvöru og flugvéla. Á móti dróst innflutningur á eldsneyti saman.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-september 2014 og 2015
  Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á gengi hvors árs, % jan.-ágúst
  September Jan.-september
  2014 2015 2014 2015
           
Útflutningur alls fob 55.006,3 47.836,3 429.382,0 480.120,9 11,8
Sjávarafurðir 24.489,3 22.485,5 179.568,5 201.345,2 12,1
Landbúnaðarvörur 896,8 1.111,4 7.467,8 9.676,4 29,6
Iðnaðarvörur 28.653,5 23.035,9 221.200,7 257.027,7 16,2
Aðrar vörur 966,6 1.203,5 21.145,1 12.071,7 -42,9
           
Innflutningur alls fob 65.028,5 54.269,8 444.714,8 494.845,9 11,3
Matvörur og drykkjarvörur 4.772,8 6.050,2 40.938,7 51.092,6 24,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 15.307,7 15.710,8 119.720,2 145.253,4 21,3
Eldsneyti og smurolíur 16.668,7 8.678,6 81.592,7 65.756,4 -19,4
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 9.440,3 10.695,2 92.137,7 98.737,1 7,2
Flutningatæki 10.174,0 5.130,4 55.326,3 73.675,0 33,2
Neysluvörur ót.a. 7.375,0 7.981,9 53.073,2 59.195,4 11,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 1.290,0 22,9 1.925,8 1.136,1 -41,0
           
Vöruskiptajöfnuður -10.022,3 -6.433,6 -15.332,8 -14.725,0 .


¹
Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1151 , netfang utanrikisverslun@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.