FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. JANÚAR 2009


Vöruskiptajöfnuður
Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2008 fluttar út vörur fyrir 467,1 milljarð króna en inn fyrir 472,7 milljarða króna fob (513,8 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd samkvæmt bráðabirgðatölum, reiknað á fob verðmæti, sem nam 5,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 127,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 121,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Samkvæmt bráðabirgðatölum voru í desembermánuði fluttar út vörur fyrir tæpa 54,0 milljarða króna og inn fyrir 29,8 milljarða króna fob (32,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því samkvæmt bráðabirgðatölum hagstæð um 24,2 milljarða króna. Í desember 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 16,7 milljarða króna á sama gengi¹.
 
Útflutningur
Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir árið 2008 var heildarverðmæti vöruútflutnings 35,1 milljarði meira en á sama tíma árið áður eða 8,1% á föstu gengi¹. Iðnaðarvörur voru 52,1% alls útflutnings og er þetta fyrsta árið, frá því að skráning á árlegum útflutningi hófst með reglubundnum hætti árið 1862, sem iðnaðarvörur eru meiri en helmingur alls útflutnings og hlutdeild þeirra hærri en sjávarafurða. Verðmæti iðnaðarvara var 46,0% meira á árinu 2008 en árið áður og vó ál þyngst í útflutningnum. Sjávarafurðir voru 36,6% alls útflutnings og hefur hlutfall sjávarafurða af heildarútflutningi ekki verið lægra síðan 1865. Verðmæti þeirra var 5,3% minna en á sama tíma árið áður. Stærsti liður útfluttra sjávarafurða var fryst fiskflök og dróst útflutningur þeirra saman frá árinu 2007. Sölur á skipum og flugvélum drógust umtalsvert saman á árinu. Árið 2008 voru fluttir út fólksbílar og flutningatæki til atvinnurekstrar fyrir 6,5 milljarða.

Innflutningur
Samkvæmt bráðabirgðatölum var verðmæti vöruinnflutnings á árinu 2008 86,8 milljörðum minna eða 15,5% á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings 2008 voru hrá- og rekstrarvara með 31,8% hlutdeild og fjárfestingarvara en hlutur þeirra var 20,8%. Af einstökum liðum varð mestur samdráttur, í krónum talið, í innflutningi á flutningatækjum, 48,1% (57,2 milljarðar), aðallega fólksbílum og flugvélum og í innflutningi á fjárfestingavöru 19,2% (23,3 milljarðar) og neysluvöru annarri en mat- og drykkjarvöru 21,6% (18,9 milljarðar) en á móti kom aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru 3,8% (5,5 milljarðar) og í verðmæti innflutnings á eldsneyti og smurolíum 16,8% (8,4 milljarðar).

Vöruskiptin við útlönd í desember 2008
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-desember
Desember  Janúar-desember
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 45.816 53.991 431.955 467.081 8,1
Innflutningur alls fob 62.511 29.814 559.460 472.656 -15,5
Vöruskiptajöfnuður -16.695 24.177 -127.505 -5.575 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í desember 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-desember
Desember Janúar-desember
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 25.524,2 53.991,0 305.095,8 467.081,1 8,1
Sjávarafurðir 9.459,7 20.840,0 127.618,6 171.147,4 -5,3
Landbúnaðarvörur 384,1 1.337,0 3.496,3 6.412,1 29,5
Iðnaðarvörur 7.935,4 29.028,5 117.743,8 243.415,7 46,0
Aðrar vörur 7.745,0 2.785,6 56.237,1 46.105,9 -42,1
Innflutningur alls fob 34.824,9 29.814,2 395.154,7 472.656,3 -15,5
Matvörur og drykkjarvörur 2.552,6 2.995,9 25.843,1 35.475,8 -3,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.814,6 11.277,6 102.251,7 150.234,1 3,8
Eldsneyti og smurolíur 1.887,4 2.140,8 35.138,9 58.127,7 16,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 6.836,3 7.080,5 85.827,5 98.214,4 -19,2
Flutningatæki 4.837,9 1.973,3 83.933,4 61.622,6 -48,1
Neysluvörur ót.a. 4.880,6 4.328,7 61.810,0 68.589,8 -21,6
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 15,4 17,3 350,2 391,8 -21,0
Vöruskiptajöfnuður -9.300,7 24.176,8 -90.058,9 -5.575,1 ·


¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 41,6% hærra mánuðina janúar–desember 2008 en sömu mánuði fyrra árs.

Í desember 2008 var meðalverð erlends gjaldeyris 79,5% hærra en í desember árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir árið 2008 verða gefnar út í apríl 2009.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin frá og með febrúartölum eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar né tölur síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.