FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 06. ÁGÚST 2009

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir júlí 2009 nam útflutningur fob 41,3 milljörðum króna og innflutningur fob 34,9 milljörðum króna. Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 6,4 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Vísbendingar eru um minna verðmæti útfluttra sjávarafurða, meira verðmæti útfluttra iðnaðarvara og meira verðmæti innflutts eldneytis í júlí 2009 miðað við júní 2009.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.