FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 05. OKTÓBER 2009

Samkvæmt bráðabirgðatölum fyrir september 2009 nam útflutningur fob tæpum 43,8 milljörðum króna og innflutningur fob 40,7 milljörðum króna. Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 3 milljarða króna samkvæmt bráðabirgðatölum.

Vísbendingar eru um minna verðmæti útflutts áls og meira verðmæti innflutts eldsneytis, hrá- og rekstrarvara og neysluvara án mat- og drykkjarvara í september 2009 miðað við ágúst 2009.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.