FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. OKTÓBER 2012


Vöruskiptajöfnuður
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 48,5 milljarða króna og inn fyrir tæpa 43 milljarða króna fob (46,3 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 5,6 milljarða króna. Í september 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 15,7 milljarða króna á sama gengi.¹

Fyrstu níu mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 462,4 milljarða króna en inn fyrir 413,7 milljarða króna fob (445,0 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 48,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 82,3 milljarða á sama gengi.¹ Vöruskiptajöfnuðurinn var því 33,6 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 5,5 milljörðum eða 1,2% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 52,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,4% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 43,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8,9% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski. Á móti kom samdráttur í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og álafurða.

Innflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 28,2 milljörðum eða 7,3% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning innflutnings varð mest í flutningatækjum en á móti kom samdráttur í innflutningi hrá- og rekstrarvara, aðallega súráls.

Vöruskiptin við útlönd janúar - september 2012
Millj. kr á gengi ársins 2012 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-september
September  Janúar-september
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 63.156 48.510 467.861 462.356 -1,2
Innflutningur alls fob 47.407 42.958 385.547 413.706 7,3
Vöruskiptajöfnuður 15.749 5.552 82.314 48.651 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-september 2011 og 2012
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-september
September Janúar-september
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 62.462,4 48.509,9 460.357,6 462.356,3 -1,2
Sjávarafurðir 28.554,5 24.002,3 180.646,7 200.016,8 8,9
Landbúnaðarvörur 560,3 760,7 5.268,9 7.286,7 36,1
Iðnaðarvörur 31.973,0 22.867,7 256.107,2 241.139,4 -7,4
Aðrar vörur 1.374,6 879,2 18.334,8 13.913,3 -25,3
Innflutningur alls fob 46.886,9 42.957,8 379.363,4 413.705,6 7,3
Matvörur og drykkjarvörur 4.479,9 3.622,7 35.504,7 36.969,2 2,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 11.976,1 13.639,5 128.036,3 120.832,4 -7,1
Eldsneyti og smurolíur 12.849,5 8.281,6 57.824,2 66.156,2 12,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.957,1 7.530,7 81.066,7 85.116,4 3,3
Flutningatæki 2.320,0 3.095,9 27.559,2 52.982,5 89,2
Neysluvörur ót.a. 6.221,2 6.248,9 48.861,2 50.353,8 1,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 83,2 538,5 511,0 1.295,2 .
Vöruskiptajöfnuður 15.575,6 5.552,1 80.994,2 48.650,7 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,6% hærra mánuðina janúar–september 2012 en sömu mánuði fyrra árs.

Í september 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 1,1% lægra en í september árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.