FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. FEBRÚAR 2008


Vöruskiptin við útlönd í janúar 2008

Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 24,2 milljarða króna og inn fyrir 33,7 milljarða króna fob (36,6 milljarða króna cif). Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 9,5 milljarða króna. Í janúar 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 2,9 milljarða króna á sama gengi¹. Verðmæti vöruútflutnings var 7,5% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður og verðmæti vöruinnflutnings var 16,1% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

Vöruskiptin við útlönd janúar 2007
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  janúar 
Janúar
  2007 2008
Útflutningur alls fob 26.144 24.191 -7,5
Innflutningur alls fob 29.013 33.684 16,1
Vöruskiptajöfnuður -2.869 -9.494 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Janúar
Janúar
  2007 2008
Útflutningur alls fob 25.900,7 24.190,5 -7,5
Sjávarafurðir 8.534,6 10.282,3 19,4
Landbúnaðarvörur 554,2 591,2 5,7
Iðnaðarvörur 9.634,0 12.301,2 26,5
Aðrar vörur 7.177,8 1.015,8 -86,0
Innflutningur alls fob 28.743,2 33.684,2 16,1
Matvörur og drykkjarvörur 1.836,2 2.197,8 18,6
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 5.563,6 8.555,4 52,3
Eldsneyti og smurolíur 3.467,5 3.263,1 -6,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.196,3 7.291,0 0,4
Flutningatæki 6.328,8 7.192,0 12,6
Neysluvörur ót.a. 4.315,6 5.160,0 18,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 35,2 24,9 -30,0
Vöruskiptajöfnuður -2.842,5 -9.493,7 ·

Leiðrétting á vöruskiptum 2007
Tölur um vöruskiptin á árinu 2007 hafa verið leiðréttar vegna upplýsinga um flugvélaviðskipti sem bárust eftir að þær voru gefnar út. Eftir leiðréttingu voru fluttar út vörur á árinu 2007 fyrir 305,1 milljarð króna fob en inn fyrir 395,2 milljarða króna fob (427,4 milljarða króna cif). Halli var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 90,1 milljarði, eða 2,2 milljörðum verri en áður var talið. Heildarverðmæti vöruútflutnings var 27,9% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður og heildarverðmæti vöruinnflutnings var 0,2% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður.

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 0,9% hærra í janúar 2008 en árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.