FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 27. FEBRÚAR 2009

Í janúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 33,6 milljarða króna og inn fyrir 33,2 milljarða króna fob (36,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í janúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 0,3 milljarða króna. Í janúar 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 16,1 milljarð króna á sama gengi¹. Verðmæti vöruútflutnings var 18,9% minna á föstu gengi en í janúar 2008 og verðmæti vöruinnflutnings var 42,2% minna á föstu gengi en í janúar 2008.

Vöruskiptin við útlönd janúar 2009
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-janúar
Janúar  Janúar-janúar
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 41,404 33,568 . . -18.9
Innflutningur alls fob 57,495 33,221 . . -42,2
Vöruskiptajöfnuður -16,092 347 . . .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar 2008 og 2009
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-janúar
Janúar Janúar-janúar
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 24,214.1 33,568.1 . . -18.9
Sjávarafurðir 10,307.2 13,320.2 . . -23.8
Landbúnaðarvörur 589.9 848.8 . . -15.8
Iðnaðarvörur 12,180.8 17,485.7 . . -16.0
Aðrar vörur 1,136.2 1,913.3 . . -1.5
. .
Innflutningur alls fob 33,624.8 33,220.9 . . -42.2
Matvörur og drykkjarvörur 2,143.7 2,565.0 . . -30.0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 8,610.9 13,003.9 . . -11.7
Eldsneyti og smurolíur 3,263.1 5,147.2 . . -7.7
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7,293.0 6,558.0 . . -47.4
Flutningatæki 7,192.0 2,013.3 . . -83.6
Neysluvörur ót.a. 5,096.8 3,904.1 . . -55.2
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 25.3 29.5 . . -31.9
. .
Vöruskiptajöfnuður -9,410.8 347.2 . . .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 71,0% hærra í janúar 2009 en í janúar 2008.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin í janúar 2009 eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar 2008.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.