Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 17,8 milljarða króna og inn fyrir 29,8 milljarða króna fob (32,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um tæpa 12 milljarða króna. Í ágúst 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 14,0 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu átta mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 176,5 milljarða króna en inn fyrir tæpa 243 milljarða króna fob (264,1 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 66,5 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 103,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 37,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 21,6 milljörðum eða 14% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 47% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2 % meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 43% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 33% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings.
Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings 15,7 milljörðum eða 6% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á mat- og drykkjarvöru og annarri neysluvöru.
Vöruskiptin við útlönd ágúst 2007 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2007 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst | ||||
Ágúst | Janúar-ágúst | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | ||
Útflutningur alls fob | 16.101 | 17.825 | 154.891 | 176.477 | 14,0 |
Innflutningur alls fob | 30.101 | 29.798 | 258.687 | 242.971 | -6,1 |
Vöruskiptajöfnuður | -14.000 | -11.973 | -103.796 | -66.494 | · |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í ágúst 2006 og 2007 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst | ||||
Ágúst | Janúar-ágúst | ||||
2006 | 2007 | 2006 | 2007 | ||
Útflutningur alls fob | 16.595,8 | 17.824,8 | 157.058,6 | 176.477,2 | 14,0 |
Sjávarafurðir | 9.542,3 | 7.722,5 | 82.953,0 | 83.614,4 | 2,2 |
Landbúnaðarvörur | 182,8 | 212,4 | 2.350,0 | 2.028,4 | -12,5 |
Iðnaðarvörur | 6.400,2 | 9.127,3 | 57.404,3 | 75.566,4 | 33,5 |
Aðrar vörur | 470,5 | 762,7 | 14.351,2 | 15.267,9 | 7,9 |
Innflutningur alls fob | 31.025,4 | 29.797,9 | 262.307,2 | 242.970,9 | -6,1 |
Matvörur og drykkjarvörur | 1.877,2 | 2.076,7 | 14.453,3 | 16.481,5 | 15,6 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 9.220,9 | 7.977,6 | 66.208,7 | 65.236,2 | -0,1 |
Eldsneyti og smurolíur | 1.622,7 | 2.551,9 | 21.179,6 | 22.005,7 | 5,4 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 7.212,5 | 5.992,8 | 67.123,8 | 59.558,3 | -10,0 |
Flutningatæki | 6.065,4 | 6.090,6 | 57.508,4 | 40.838,1 | -28,0 |
Neysluvörur ót.a. | 4.998,7 | 5.078,0 | 35.548,8 | 38.617,2 | 10,2 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 28,1 | 30,4 | 284,6 | 233,7 | -16,7 |
Vöruskiptajöfnuður | -14.429,6 | -11.973,1 | -105.248,6 | -66.493,8 | · |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,4% lægra mánuðina janúar–ágúst 2007 en sömu mánuði fyrra árs.
Í ágúst 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 3,0% lægra en í ágúst árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.
Talnaefni