FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 21. FEBRÚAR 2007


Vöruskiptajöfnuður

Allt árið 2006 voru fluttar út vörur fyrir 242,7 milljarða króna en inn fyrir 391,3 milljarða króna fob (422,3 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 148,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 105,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 42,9 milljörðum króna lakari árið 2006 en árið 2005.

 Í desembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 20,1 milljarð króna og inn fyrir 33,3 milljarða króna fob (35,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 13,1 milljarð króna. Í desember 2005 voru vöruskiptin óhagstæð um 11,2 milljarða króna á sama gengi¹.

Útflutningur
Allt árið 2006 var heildarverðmæti vöruútflutnings 25,5 milljörðum eða 11,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 51,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,0% (1,2 milljörðum) meira en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir útfluttra sjávarafurða voru fryst fiskflök, ferskur fiskur og saltaður og/eða þurrkaður fiskur. Útflutningur á ferskum fiski og fyrstum flökum jókst en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystri rækju. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 24,6% (18,4 milljörðum) meira en árið áður. Ál vó þyngst í útflutningi iðnaðarvöru. Aukningu útfluttra iðnaðarvara má einna helst rekja til aukins útflutnings á áli. Sala á skipum og flugvélum jókst umtalsvert á árinu.
 
Innflutningur
Heildarverðmæti vöruinnflutnings árið 2006 var 68,4 milljörðum eða 21,2% meira á föstu gengi¹ en árið áður. Stærstu liðir innflutnings 2006 voru hrá- og rekstrarvara með 24,8% hlutdeild, fjárfestingarvara með 24,6% hlutdeild og flutningatæki með 21,3% hlutdeild. Aukning var í flestum liðum innflutnings. Af einstökum liðum varð mest aukning, í krónum talið, í innflutningi á fjárfestingavöru, 28,4% (21,3 milljarðar), hrá- og rekstrarvöru 25,4% (19,6 milljarðar) og flutningatækjum 28,3% (18,4 milljarðar), sérstaklega flugvélum. Flugvélainnflutningur reyndist mun meiri en gert var ráð fyrir í áður birtum bráðabirgðatölum. Á móti kom samdráttur í innflutningi á fólksbílum.

Vöruskiptin við útlönd janúar–desember 2006
Millj. kr á gengi ársins 2006 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-desember
Desember  Janúar-desember
  2005 2006 2005 2006
Útflutningur alls fob 16.343 20.136 217.289 242.740 11,7
Innflutningur alls fob 27.541 33.252 322.984 391.350 21,2
Vöruskiptajöfnuður -11.198 -13.116 -105.695 -148.610 .

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–desember 2005 og 2006
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-desember
Desember Janúar-desember
  2005 2006 2005 2006
Útflutningur alls fob 13.689,6 20.136,3 194.355,3 242.740,0 11,7
Sjávarafurðir 7.855,5 8.811,4 110.130,1 124.375,0 1,0
Landbúnaðarvörur 333,6 703,8 3.759,6 4.335,0 3,1
Iðnaðarvörur 4.815,9 9.892,9 66.775,8 93.020,3 24,6
Aðrar vörur 684,6 728,2 13.689,7 21.009,7 37,3
Innflutningur alls fob 23.070,1 33.252,2 288.894,8 391.349,7 21,2
Matvörur og drykkjarvörur 1.761,8 2.296,6 19.720,5 23.162,3 5,1
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 5.582,4 7.935,9 69.103,6 96.905,4 25,4
Eldsneyti og smurolíur 288,3 1.619,9 27.028,2 34.661,1 14,7
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.068,4 7.865,6 67.200,5 96.448,3 28,4
Flutningatæki 4.292,5 8.563,0 58.204,7 83.469,8 28,3
Neysluvörur ót.a. 4.057,7 4.962,7 47.334,0 56.277,0 6,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 19,0 8,5 303,3 425,8 25,6
Vöruskiptajöfnuður -9.380,5 -13.116,0 -94.539,5 -148.609,7 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 11,8% hærra mánuðina janúar–desember 2006 en sömu mánuði fyrra árs.

Í desember 2006 var meðalverð erlends gjaldeyris 19,4% hærra en í desember árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.