FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 22. FEBRÚAR 2008


Vöruskiptajöfnuður
Allt árið 2007 voru fluttar út vörur fyrir 302,8 milljarða króna en inn fyrir 390,7 milljarða króna fob (422,9 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 87,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 155,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því tæpum 67,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Í desembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 25,5 milljarða króna og inn fyrir 34,8 milljarða króna fob (37,7 milljarða króna cif). Vöruskiptin í desember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 9,3 milljarða króna. Í desember 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um tæpa 20,2 milljarða króna á sama gengi¹.
  
Útflutningur
Allt árið 2007 var heildarverðmæti vöruútflutnings 64,2 milljörðum eða 26,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,4% (5,4 milljörðum) meira en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir útfluttra sjávarafurða voru fryst fiskflök, ferskur fiskur og saltaður og/eða þurrkaður fiskur. Útflutningur á frystum flökum jókst en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystum heilum fiski. Útfluttar iðnaðarvörur voru 39% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 29,7% (27,2 milljörðum) meira en árið áður. Ál vó þyngst í útflutningi iðnaðarvöru. Aukningu útfluttra iðnaðarvara má helst rekja til aukins útflutnings á áli. Sala á skipum og flugvélum jókst umtalsvert á árinu.

Innflutningur
Árið  2007 var heildarverðmæti vöruinnflutnings 3,5 milljörðum eða tæpu 1% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Stærstu liðir innflutnings 2007 voru hrá- og rekstrarvara með 26,2% hlutdeild, fjárfestingarvara með 22,0% hlutdeild og flutningatæki með 20,3% hlutdeild. Af einstökum liðum varð mestur samdráttur, í krónum talið, í innflutningi á flutningatækjum 13,3%, aðallega flugvélum 46,1% (18,1 milljarður) og fjárfestingavöru 9,4% (8,9 milljarðar) en á móti kom aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvöru 7,4% (7,0 milljarðar), neysluvöru ót.a. 11,8% (6,5 milljarðar) og mat- og drykkjarvöru 13,5% (3,1 milljarður).

Vöruskiptin við útlönd desember 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-desember
Desember  Janúar-desember
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 19.470,0 25.524,2 238.516,0 302.780,8 26,9
Innflutningur alls fob 39.643,0 34.824,9 394.221,0 390.688,7 -0,9
Vöruskiptajöfnuður -20.173,0 -9.300,7 -155.704,0 -87.907,8 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í desember 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-desember
Desember Janúar-desember
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 20.136,3 25.524,2 242.740,0 302.780,8 26,9
Sjávarafurðir 8.811,4 9.459,7 124.375,0 127.618,6 4,4
Landbúnaðarvörur 703,8 384,1 4.335,0 3.496,3 -17,9
Iðnaðarvörur 9.892,9 8.001,4 93.020,3 118.580,5 29,7
Aðrar vörur 728,2 7.679,0 21.009,7 53.085,5 ·
Innflutningur alls fob 40.999,5 34.824,9 401.201,5 390.688,7 -0,9
Matvörur og drykkjarvörur 2.296,6 2.552,6 23.162,3 25.843,1 13,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 7.935,9 13.814,6 96.905,4 102.251,7 7,4
Eldsneyti og smurolíur 1.619,9 1.887,4 34.661,1 35.138,9 3,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.865,6 6.836,3 96.448,3 85.827,6 -9,4
Flutningatæki 16.310,3 4.837,9 93.321,6 79.467,2 -13,3
Neysluvörur ót.a. 4.962,7 4.880,6 56.277,0 61.810,0 11,8
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 8,5 15,4 425,8 350,2 -16,3
Vöruskiptajöfnuður -20.863,3 -9.300,7 -158.461,5 -87.907,8 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,7% lægra mánuðina janúar–desember 2007 en sömu mánuði fyrra árs.

Í desember 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 3,3% lægra en í desember árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.