FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MARS 2008


Vöruskiptajöfnuður
Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 19,5 milljarða króna og inn fyrir tæpa 32 milljarða króna fob (34,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 12,5 milljarða króna. Í febrúar 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 5,5 milljarða króna á sama gengi¹. 

Fyrstu tvo mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 43,7 milljarða króna en inn fyrir 65,6 milljarða króna fob (71,4 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam tæpum 22 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 8,3 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 13,6 milljörðum króna óhagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 8,9 milljörðum eða 17% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 45% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,6% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 49% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 0,3% meira en árið áður. Mestur samdráttur varð í útflutningi skipa og flugvéla en einnig dróst útflutningur á áli saman.

Innflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 4,7 milljörðum eða 7,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á fólksbílum og eldsneyti og smurolíu en á móti kom samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingavöru.

Vöruskiptin við útlönd febrúar 2008
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-febrúar
Febrúar  Janúar-febrúar
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 25.849 19.482 52.627 43.696 -17,0
Innflutningur alls fob 31.310 31.968 60.966 65.647 7,7
Vöruskiptajöfnuður -5.461 -12.485 -8.339 -21.951 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í febrúar 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-febrúar
Febrúar Janúar-febrúar
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 23.878,8 19.482,3 49.779,4 43.695,6 -17,0
Sjávarafurðir 11.664,6 9.435,0 20.199,2 19.740,1 -7,6
Landbúnaðarvörur 369,4 351,1 923,7 942,3 -3,5
Iðnaðarvörur 10.618,5 9.184,4 20.252,6 21.485,5 0,3
Aðrar vörur 1.226,2 511,8 8.404,0 1.527,7 -82,8
Innflutningur alls fob 28.924,0 31.967,6 57.667,2 65.647,1 7,7
Matvörur og drykkjarvörur 1.785,4 2.256,4 3.621,6 4.454,2 16,3
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 9.719,2 9.340,5 15.282,7 17.895,6 10,8
Eldsneyti og smurolíur 1.089,8 3.857,7 4.557,4 7.120,7 47,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.317,6 6.797,4 15.513,9 14.088,4 -14,1
Flutningatæki 3.423,6 4.310,8 9.752,4 11.502,7 11,6
Neysluvörur ót.a. 4.580,0 5.385,8 8.895,6 10.541,4 12,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 8,4 19,0 43,6 43,9 -4,7
Vöruskiptajöfnuður -5.045,2 -12.485,4 -7.887,8 -21.951,5 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 5,7% hærra mánuðina janúar–febrúar 2008 en sömu mánuði fyrra árs.

Í febrúar 2008 var meðalverð erlends gjaldeyris 8,2% hærra en í febrúar árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin í febrúar eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar né tölur síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.