FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. ÁGÚST 2007


Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 17,9 milljarða króna og inn fyrir 32,7 milljarða króna fob (35,5 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 14,8 milljarða króna. Í júlí 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 16,2 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu sjö mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 157,9 milljarða króna en inn fyrir 213,2 milljarða króna fob (231,7 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam tæpum 55,4 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 89,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 34,4 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 19,0 milljörðum eða 14% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 48% alls útflutnings og var verðmæti þeirra tæplega 5% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 42% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 30% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings en á móti kom minni útflutningur á lyfjum og lækningatækjum.
 
Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings 15,4 milljörðum eða 7% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á neysluvöru, annarri en mat- og drykkjarvöru.

Vöruskiptin við útlönd júlí 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-júlí
Júlí  Janúar-júlí
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 16.836 17.858 138.875 157.863 13,7
Innflutningur alls fob 33.009 32.689 228.668 213.234 -6,7
Vöruskiptajöfnuður -16.173 -14.831 -89.793 -55.371 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í júlí 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júlí
Júlí Janúar-júlí
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 19.377,9 17.857,8 140.462,8 157.863,2 13,7
Sjávarafurðir 5.242,3 9.325,7 73.410,7 75.890,4 4,6
Landbúnaðarvörur 206,3 139,6 2.167,2 1.816,0 -15,3
Iðnaðarvörur 6.241,4 7.964,0 51.004,1 65.651,6 30,2
Aðrar vörur 3.234,4 428,4 13.880,7 14.505,3 5,7
Innflutningur alls fob 37.993,7 32.688,8 231.281,8 213.234,5 -6,7
Matvörur og drykkjarvörur 2.058,8 2.160,9 12.576,1 14.422,5 16,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 8.435,5 7.725,8 56.987,9 57.238,6 1,6
Eldsneyti og smurolíur 5.136,6 4.360,4 19.556,9 19.453,8 0,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.010,1 8.634,5 59.911,3 53.625,3 -9,5
Flutningatæki 6.856,5 4.896,9 51.443,0 34.749,8 -31,7
Neysluvörur ót.a. 4.469,6 4.892,5 30.550,0 33.541,4 11,0
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 26,6 17,8 256,5 203,2 -19,9
Vöruskiptajöfnuður -18.615,7 -14.831,0 -90.819,0 -55.371,3 ·


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,1% lægra mánuðina janúar–júlí 2007 en sömu mánuði fyrra árs.

Í júlí 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 13,1% lægra en í júlí árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.