FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. ÁGÚST 2008


Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 34,1 milljarð króna og inn fyrir 51,6 milljarða króna fob (55,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 17,5 milljarða króna. Í júlí 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 15,6 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu sjö mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 241,0 milljarð króna en inn fyrir 282,8 milljarða króna fob (307,1 milljarð króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 41,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 65,0 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 23,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 27,8 milljörðum eða 13,0% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 44,8% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 37,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,7% minna en á sama tíma árið áður.  Mest aukning var í útflutningi á áli en á móti kom samdráttur í útflutningi sjávarafurða, aðallega frystra flaka og í útflutningi skipa og flugvéla.

Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 4,7 milljörðum eða 1,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og á eldsneyti og smurolíum en á móti kom samdráttur í innflutningi á fjárfestingarvöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum.

Vöruskiptin við útlönd júlí 2008
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-júlí
Júlí  Janúar-júlí
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 31.027 34.111 213.161 240.953 13,0
Innflutningur alls fob 46.672 51.632 278.151 282.818 1,7
Vöruskiptajöfnuður -15.645 -17.521 -64.990 -41.865 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í júlí 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júlí
Júlí Janúar-júlí
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 21.718,6 34.111,4 171.241,2 240.953,2 13,0
Sjávarafurðir 9.325,7 11.586,7 75.893,6 89.056,2 -5,7
Landbúnaðarvörur 139,6 333,3 1.816,0 2.734,1 20,9
Iðnaðarvörur 8.945,4 21.281,3 67.380,6 121.419,1 44,8
Aðrar vörur 3.307,9 910,1 26.151,0 27.743,8 -14,8
Innflutningur alls fob 32.669,9 51.631,9 223.450,0 282.817,7 1,7
Matvörur og drykkjarvörur 2.105,8 3.450,0 14.345,8 20.330,4 13,8
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 7.781,2 18.869,5 57.337,3 85.478,5 19,8
Eldsneyti og smurolíur 4.360,7 9.135,2 19.454,1 32.512,6 34,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.574,7 10.517,2 53.582,3 59.758,0 -10,4
Flutningatæki 4.935,5 3.558,9 44.993,5 44.232,5 -21,0
Neysluvörur ót.a. 4.894,1 6.092,2 33.533,8 40.290,9 -3,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 17,9 8,8 203,3 214,7 -15,2
Vöruskiptajöfnuður -10.951,3 -17.520,5 -52.208,8 -41.864,5 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 24,5% hærra mánuðina janúar–júlí 2008 en sömu mánuði fyrra árs.

Í júlí 2008 var meðalverð erlends gjaldeyris 42,9% hærra en í júlí árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin frá og með febrúartölum eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar né tölur síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.