Vöruskiptajöfnuður
Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir 40,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 32 milljarða króna fob (34,7 milljarð króna cif). Vöruskiptin í júní, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 8,7 milljarða króna. Í júní 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 3,4 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu sex mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 211,8 milljarða króna en inn fyrir 178,8 milljarða króna fob (194,9 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam tæpum 33 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 70,8 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 93,8 milljörðum eða 30,7% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,8% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 17,1% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 48,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 30,2% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og á sjávarafurðum.
Innflutningur
Fyrstu sex mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 164,6 milljörðum eða 47,9% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í flutningatækjum, hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingavöru.
Vöruskiptin við útlönd janúar-júní 2009 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2009 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júní | ||||
Júní | Janúar-júní | ||||
2008 | 2009 | 2008 | 2009 | ||
Útflutningur alls fob | 59.813 | 40.712 | 305.663 | 211.815 | -30,7 |
Innflutningur alls fob | 56.394 | 31.976 | 343.452 | 178.846 | -47,9 |
Vöruskiptajöfnuður | 3.419 | 8.736 | -37.789 | 32.968 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júní 2008 og 2009 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júní | ||||
Júní | Janúar-júní | ||||
2008 | 2009 | 2008 | 2009 | ||
Útflutningur alls fob | 41.465,2 | 40.712,2 | 207.341,9 | 211.814,7 | -30,7 |
Sjávarafurðir | 13.772,9 | 19.397,7 | 77.657,3 | 94.957,9 | -17,1 |
Landbúnaðarvörur | 471,8 | 479,6 | 2.413,3 | 3.629,1 | 2,0 |
Iðnaðarvörur | 22.571,5 | 19.299,7 | 99.617,5 | 102.436,1 | -30,2 |
Aðrar vörur | 4.649,0 | 1.535,2 | 27.653,8 | 10.791,5 | -73,5 |
Innflutningur alls fob | 39.094,7 | 31.976,0 | 232.975,2 | 178.846,3 | -47,9 |
Matvörur og drykkjarvörur | 2.882,3 | 4.024,1 | 17.357,6 | 19.129,0 | -25,2 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 13.071,0 | 9.650,5 | 67.262,1 | 56.593,7 | -42,9 |
Eldsneyti og smurolíur | 5.067,8 | 3.082,6 | 23.504,2 | 21.136,2 | -39,0 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 7.984,6 | 7.291,9 | 52.504,7 | 41.560,4 | -46,3 |
Flutningatæki | 4.939,3 | 2.817,8 | 39.502,5 | 12.575,6 | -78,4 |
Neysluvörur ót.a. | 5.062,5 | 5.060,9 | 32.657,6 | 27.595,6 | -42,7 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 87,2 | 48,3 | 186,5 | 255,8 | -7,0 |
Vöruskiptajöfnuður | 2.370,5 | 8.736,2 | -25.633,3 | 32.968,4 | · |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 47,4% hærra mánuðina janúar–júní 2009 en sömu mánuði fyrra árs.
Í júní 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 44,2% hærra en í júní árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.