FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. JÚNÍ 2008


Vöruskiptajöfnuður

Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 39,3 milljarða króna og inn fyrir tæpa 39,9 milljarða króna fob (43,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 0,5 milljarða króna. Í maí 2007 voru vöruskiptin óhagstæð um 12,6 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu fimm mánuðina 2008 voru fluttar út vörur fyrir 150,8 milljarða króna en inn fyrir 182,8 milljarða króna fob (199,6 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 32 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,3 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 5,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruútflutnings 2,2 milljörðum eða 1,5% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 51,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 34,3% meira en árið áður. Sjávarafurðir voru 42,2% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,7% minna en á sama tíma árið áður.  Mestur samdráttur varð í útflutningi skipa og flugvéla og sjávarafurða, aðallega frystra flaka, en á móti kom aukning í útflutningi á áli.

Innflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2008 var verðmæti vöruinnflutnings 3,1 milljarði eða 1,7% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru en á móti kom aukning í innflutningi á hrá- og rekstrarvörum og eldsneyti og smurolíum.

Vöruskiptin við útlönd maí 2008
Millj. kr á gengi ársins 2008 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-maí
Maí  Janúar-maí
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 32.116 39.340 148.578 150.788 1,5
Innflutningur alls fob 44.689 39.851 185.878 182.792 -1,7
Vöruskiptajöfnuður -12.573 -510 -37.300 -32.005 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í maí 2007 og 2008
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-maí
Maí Janúar-maí
  2007 2008 2007 2008
Útflutningur alls fob 24.229,5 39.340,3 126.417,4 150.788,0 1,5
Sjávarafurðir 10.540,9 15.205,0 56.247,8 63.638,8 -3,7
Landbúnaðarvörur 166,1 448,9 1.577,3 1.928,5 4,0
Iðnaðarvörur 9.947,1 22.852,2 49.114,7 77.494,2 34,3
Aðrar vörur 3.575,3 834,2 19.477,6 7.726,4 -66,2
Innflutningur alls fob 33.715,2 39.850,6 158.153,5 182.792,5 -1,7
Matvörur og drykkjarvörur 2.240,7 3.703,2 9.865,3 14.082,6 21,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 8.323,4 11.881,4 42.728,7 53.564,7 6,7
Eldsneyti og smurolíur 2.911,7 4.717,1 12.749,4 18.309,6 22,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.073,6 8.988,5 37.664,3 41.426,4 -6,4
Flutningatæki 7.960,7 4.835,8 30.664,0 26.351,2 -26,9
Neysluvörur ót.a. 5.198,1 5.703,5 24.303,5 28.948,9 1,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 7,0 21,0 178,2 109,0 -47,9
Vöruskiptajöfnuður -9.485,7 -510,4 -31.736,1 -32.004,5 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 17,5% hærra mánuðina janúar–maí 2008 en sömu mánuði fyrra árs.

Í maí 2008 var meðalverð erlends gjaldeyris 32,5% hærra en í maí árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Frá og með 1. febrúar 2008 breyttist umreikningur vöru í erlendum gjaldeyri til íslenskra króna. Áður var  mánaðarlegt sölugengi notað við verðmætisútreikning innflutnings og mánaðarlegt kaupgengi við verðmætisútreikning útflutnings. Nú er miðað við daglegt miðgengi viðkomandi gjaldmiðla fyrir innflutning og útflutning eins og það er skráð af Seðlabanka Íslands síðasta virka dag á undan tollafgreiðsludegi. Vöruskiptin frá og með febrúartölum eru því ekki fyllilega sambærileg við niðurstöður janúarmánaðar né tölur síðasta árs.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.