Vöruskiptajöfnuður
Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 38,7 milljarða króna og inn fyrir 31,3 milljarða króna fob (34,0 milljarð króna cif). Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 7,4 milljarða króna. Í maí 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 3,7 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu fimm mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 171,1 milljarð króna en inn fyrir 146,9 milljarða króna fob (160,2 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 24,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 41,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 65,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 74,6 milljörðum eða 30,4% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 20,1% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 48,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 27,1% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á sjávarafurðum og skipum og flugvélum.
Innflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 140,3 milljörðum eða 48,8% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í verðmæti nær allra liða innflutnings, mest í flutningatækjum, hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingavöru.
Vöruskiptin við útlönd janúar-maí 2009 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2009 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-maí | ||||
Maí | Janúar-maí | ||||
2008 | 2009 | 2008 | 2009 | ||
Útflutningur alls fob | 70.143 | 38.723 | 245.680 | 171.099 | -30,4 |
Innflutningur alls fob | 73.861 | 31.331 | 287.156 | 146.886 |
-48,8 |
Vöruskiptajöfnuður | -3.718 | 7.392 | -41.476 | 24.213 |
. |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-maí 2008 og 2009 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-maí | ||||
Maí | Janúar-maí | ||||
2008 | 2009 | 2008 | 2009 | ||
Útflutningur alls fob | 47.570,7 | 38.722,6 | 165.876,6 | 171.099,3 | -30,4 |
Sjávarafurðir | 15.219,4 | 17.916,4 | 63.884,4 | 75.557,1 | -20,1 |
Landbúnaðarvörur | 448,9 | 504,8 | 1.941,5 | 3.149,5 | 9,5 |
Iðnaðarvörur | 22.644,7 | 19.142,7 | 77.046,0 | 83.136,4 | -27,1 |
Aðrar vörur | 9.257,6 | 1.158,7 | 23.004,8 | 9.256,3 | -72,8 |
Innflutningur alls fob | 50.091,9 | 31.330,5 | 193.880,4 | 146.886,3 | -48,8 |
Matvörur og drykkjarvörur | 3.707,9 | 3.397,7 | 14.475,3 | 15.104,9 | -29,5 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 12.673,5 | 8.427,6 | 54.191,1 | 46.957,8 | -41,5 |
Eldsneyti og smurolíur | 4.717,1 | 5.277,8 | 18.436,5 | 18.053,7 | -33,9 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 9.218,6 | 7.034,0 | 44.520,1 | 34.267,5 | -48,0 |
Flutningatæki | 14.244,9 | 2.053,9 | 34.563,1 | 9.761,3 | -80,9 |
Neysluvörur ót.a. | 5.510,3 | 5.114,6 | 27.595,1 | 22.533,7 | -44,9 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 19,7 | 24,9 | 99,3 | 207,4 | 41,0 |
Vöruskiptajöfnuður | -2.521,2 | 7.392,1 | -28.003,8 | 24.213,0 | . |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 48,1% hærra mánuðina janúar–maí 2009 en sömu mánuði fyrra árs.
Í maí 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 47,5% hærra en í maí árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.
Talnaefni