FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. JÚNÍ 2009


Vöruskiptajöfnuður

Í maímánuði voru fluttar út vörur fyrir 38,7 milljarða króna og inn fyrir 31,3 milljarða króna fob (34,0 milljarð króna cif). Vöruskiptin í maí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 7,4 milljarða króna. Í maí 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 3,7 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu fimm mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 171,1 milljarð króna en inn fyrir 146,9 milljarða króna fob (160,2 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 24,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 41,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 65,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
 
Útflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 74,6 milljörðum eða 30,4% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,1% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 20,1% minna en á sama tíma árið áður.  Útfluttar iðnaðarvörur voru 48,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 27,1% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á sjávarafurðum og skipum og flugvélum.

Innflutningur
Fyrstu fimm mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 140,3 milljörðum eða 48,8% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í verðmæti nær allra liða innflutnings, mest í flutningatækjum, hrá- og rekstrarvöru og fjárfestingavöru.

Vöruskiptin við útlönd janúar-maí 2009
Millj. kr á gengi ársins 2009 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-maí
Maí  Janúar-maí
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 70.143 38.723 245.680 171.099 -30,4
Innflutningur alls fob 73.861 31.331 287.156 146.886

-48,8

Vöruskiptajöfnuður -3.718 7.392 -41.476 24.213

.


Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-maí 2008 og 2009
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-maí
Maí Janúar-maí
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 47.570,7 38.722,6 165.876,6 171.099,3 -30,4
Sjávarafurðir 15.219,4 17.916,4 63.884,4 75.557,1 -20,1
Landbúnaðarvörur 448,9 504,8 1.941,5 3.149,5 9,5
Iðnaðarvörur 22.644,7 19.142,7 77.046,0 83.136,4 -27,1
Aðrar vörur 9.257,6 1.158,7 23.004,8 9.256,3 -72,8
Innflutningur alls fob 50.091,9 31.330,5 193.880,4 146.886,3 -48,8
Matvörur og drykkjarvörur 3.707,9 3.397,7 14.475,3 15.104,9 -29,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 12.673,5 8.427,6 54.191,1 46.957,8 -41,5
Eldsneyti og smurolíur 4.717,1 5.277,8 18.436,5 18.053,7 -33,9
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 9.218,6 7.034,0 44.520,1 34.267,5 -48,0
Flutningatæki 14.244,9 2.053,9 34.563,1 9.761,3 -80,9
Neysluvörur ót.a. 5.510,3 5.114,6 27.595,1 22.533,7 -44,9
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 19,7 24,9 99,3 207,4 41,0
Vöruskiptajöfnuður -2.521,2 7.392,1 -28.003,8 24.213,0 .

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 48,1% hærra mánuðina janúar–maí 2009 en sömu mánuði fyrra árs.
Í maí 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 47,5% hærra en í maí árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.