FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. APRÍL 2007


Vöruskiptajöfnuður

Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 29,5 milljarða króna og inn fyrir 34,0 milljarða króna fob (36,9 milljarða króna cif). Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 4,5 milljarða króna. Í mars 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 18,2 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu þrjá mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 79,3 milljarða króna en inn fyrir 88,3 milljarða króna fob (95,9 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 9,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 36,2 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu þrjá mánuðina ársins 2007 nam verðmæti vöruútflutnings 21,5 milljörðum eða 37,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 10% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 40% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 55,5% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings og sölu flugvéla til útlanda en einnig varð aukning í útflutningi á frystum flökum og kísiljárni.
 
Innflutningur

Fyrstu þrjá mánuði ársins 2007 nam verðmæti vöruinnflutnings 5,6 milljörðum eða 6,0% minna á föstu gengi¹ en árið áður. Mestur varð samdráttur í innflutningi á fólksbílum og flugvélum en á móti kom aukning í innflutningi á fjárfestingarvöru og neysluvöru annarri en mat- og drykkjarvöru.

Vöruskiptin við útlönd mars 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-mars
Mars  Janúar-mars
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 19.915 29.482 51.627 79.272 37,1
Innflutningur alls fob 36.052 33.984 83.931 88.335 -6,0
Vöruskiptajöfnuður -16.137 -4.503 -32.304 -9.064 ·

Verðmæti útflutnings og innflutnings í mars 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-mars
Mars Janúar-mars
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 19.915,2 29.481,6 51.627,2 79.271,7 37,1
Sjávarafurðir 7.099,3 14.729,6 28.340,9 34.946,3 10,1
Landbúnaðarvörur 307,1 354,4 1.136,2 1.260,5 -0,9
Iðnaðarvörur 7.728,0 11.525,9 18.261,6 31.798,5 55,5
Aðrar vörur 266,6 2.871,6 3.888,4 11.266,4 ·
Innflutningur alls fob 36.052,1 33.984,3 83.931,4 88.335,3
Matvörur og drykkjarvörur 1.851,1 2.135,6 4.508,5 5.755,8 14,0
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 7.923,3 9.239,4 21.209,7 24.513,6 3,2
Eldsneyti og smurolíur 4.267,5 3.543,4 7.501,4 8.100,7 -3,6
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.713,4 8.122,6 20.167,4 23.632,8 4,7
Flutningatæki 9.281,0 5.440,8 18.541,4 11.887,8 -42,7
Neysluvörur ót.a. 4.979,9 5.452,1 11.918,2 14.350,5 7,5
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 36,1 50,4 84,8 94,0 -1,0
Vöruskiptajöfnuður -16.137,0 -4.502,7 -32.304,3 -9.063,5 ·


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 12,0% hærra mánuðina janúar–mars 2007 en sömu mánuði fyrra árs.

Í mars 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 4,1% hærra en í mars árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út í mars næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.