Vöruskiptajöfnuður
Í marsmánuði voru fluttar út vörur fyrir 34,7 milljarða króna og inn fyrir 26,5 milljarða króna fob (28,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í mars, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 8,3 milljarða króna. Í mars 2008 voru vöruskiptin óhagstæð um 3,1 milljarð króna á sama gengi¹.
Fyrstu þrjá mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 100,7 milljarða króna en inn fyrir 86,1 milljarð króna fob (94,1 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 14,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 37,5 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 52,1 milljarði króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 17,4 milljörðum eða 14,7% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 13,2% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 49% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 15,3% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls.
Innflutningur
Fyrstu þrjá mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 69,4 milljörðum eða 44,6% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í verðmæti nær allra liða innflutnings, mest í fjárfestingavöru og flutningatækjum.
Vöruskiptin við útlönd janúar-mars 2009 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2009 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-mars | ||||
Mars | Janúar-mars | ||||
2008 | 2009 | 2008 | 2009 | ||
Útflutningur alls fob | 45.935 | 34.738 | 118.039 | 100.685 | -14,7 |
Innflutningur alls fob | 49.078 | 26.483 | 155.563 | 86.123 | -44,6 |
Vöruskiptajöfnuður | -3.143 | 8.256 | 37.524 | 14.562 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-mars 2008 og 2009 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-mars | ||||
Mars | Janúar-mars | ||||
2008 | 2009 | 2008 | 2009 | ||
Útflutningur alls fob | 34.284,8 | 34.738,4 | 78.233,4 | 100.684,6 | -14,7 |
Sjávarafurðir | 12.565,1 | 15.176,6 | 32.553,6 | 42.645,5 | -13,2 |
Landbúnaðarvörur | 229,2 | 620,0 | 1.177,1 | 2.168,0 | 22,1 |
Iðnaðarvörur | 17.294,2 | 17.151,6 | 38.645,8 | 49.387,2 | -15,3 |
Aðrar vörur | 4.113,9 | 1.790,1 | 5.857,0 | 6.484,0 | -26,6 |
Innflutningur alls fob | 36.630,6 | 26.482,7 | 103.103,9 | 86.122,9 | -44,6 |
Matvörur og drykkjarvörur | 3.073,7 | 3.002,2 | 7.693,4 | 8.497,2 | -26,8 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 10.975,9 | 6.772,1 | 28.521,7 | 28.138,4 | -34,6 |
Eldsneyti og smurolíur | 2.198,0 | 2.154,4 | 9.445,5 | 10.047,5 | -29,5 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 9.863,1 | 7.140,0 | 25.709,9 | 20.199,2 | -47,9 |
Flutningatæki | 4.695,6 | 2.198,7 | 15.744,5 | 6.264,2 | -73,6 |
Neysluvörur ót.a. | 5.814,5 | 5.188,1 | 15.935,5 | 12.835,4 | -46,6 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 9,7 | 27,2 | 53,3 | 141,0 | 75,2 |
Vöruskiptajöfnuður | -2.345,7 | 8.255,7 | -24.870,4 | 14.561,7 | · |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 50,9% hærra mánuðina janúar–mars 2009 en sömu mánuði fyrra árs.
Í mars 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 34,0% hærra en í mars árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir