Vöruskiptajöfnuður
Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 19,8 milljarða króna og inn fyrir 33,2 milljarða króna fob (36,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 13,5 milljarða króna. Í nóvember 2005 voru vöruskiptin óhagstæð um 13,2 milljarða króna á föstu gengi¹.
Fyrstu ellefu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 213,0 milljarða króna en inn fyrir 335,6 milljarða króna fob (364,0 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 122,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 94,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,9 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu ellefu mánuði ársins var 12,2 milljörðum eða 6,1% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 54,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 1,8% meira en á sama tíma árið áður. Aukning var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystri rækju. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 20,4% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hækkunar álverðs. Á móti kom samdráttur í útflutningi á kísiljárni. Einnig varð samdráttur í útflutningi skipa og flugvéla.
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu ellefu mánuði ársins var 40,1 milljarði fob eða 13,6% meira á föstu gengi1 en árið áður. Rúman helming af þeirri aukningu, eða 21,7 milljarða, má rekja til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem jókst um 32,5%. Innflutningur hrá- og rekstrarvöru jókst um 25,9%, eða um 18,3 milljarða. Verðhækkun á eldneyti og smurolíu leiddi til 11,2% aukningar, eða um 3,3 milljarða. Innflutningur neysluvöru, annarrar en mat- og drykkjarvöru, jókst um 6,7% eða 3,2 milljarða en 4,8% aukning varð í innflutningi á mat- og drykkjarvöru. Aftur á móti dróst innflutningur á flutningatækjum saman um 12,4%, eða um 7,4 milljarða, aðallega vegna minni flugvélainnflutnings en einnig varð samdráttur í innflutningi fólksbíla.
Vöruskiptin við útlönd janúar–nóvember 2006 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2006 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-nóvember | ||||
Nóvember | Janúar-nóvember | ||||
2005 | 2006 | 2005 | 2006 | ||
Útflutningur alls fob | 20.118 | 19.777 | 200.846 | 213.008 | 6,1 |
Innflutningur alls fob | 33.341 | 33.250 | 295.517 | 335.644 | 13,6 |
Vöruskiptajöfnuður | -13.223 | -13.472 | -94.671 | -122.636 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–nóvember 2005 og 2006 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-nóvember | ||||
Nóvember | Janúar-nóvember | ||||
2005 | 2006 | 2005 | 2006 | ||
Útflutningur alls fob | 16.746,9 | 19.777,3 | 180.665,7 | 213.008,1 | 6,1 |
Sjávarafurðir | 9.530,1 | 10.624,2 | 102.274,7 | 115.742,3 | 1,8 |
Landbúnaðarvörur | 401,9 | 482,6 | 3.426,0 | 3.633,5 | -4,6 |
Iðnaðarvörur | 6.394,5 | 8.079,7 | 61.959,9 | 82.930,4 | 20,4 |
Aðrar vörur | 420,4 | 590,8 | 13.005,1 | 10.701,9 | -26,0 |
Innflutningur alls fob | 27.754,3 | 33.249,7 | 265.824,7 | 335.644,2 | 13,6 |
Matvörur og drykkjarvörur | 1.745,4 | 2.271,2 | 17.958,7 | 20.919,9 | 4,8 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 6.455,9 | 7.549,6 | 63.521,2 | 88.910,7 | 25,9 |
Eldsneyti og smurolíur | 4.255,9 | 4.654,1 | 26.740,0 | 33.041,1 | 11,2 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 6.392,1 | 8.507,3 | 60.132,1 | 88.548,7 | 32,5 |
Flutningatæki | 3.807,6 | 4.493,8 | 53.912,2 | 52.483,7 | -12,4 |
Neysluvörur ót.a. | 5.068,9 | 5.753,8 | 43.276,3 | 51.325,8 | 6,7 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 28,6 | 19,9 | 284,3 | 414,3 | 31,1 |
Vöruskiptajöfnuður | -11.007,3 | -13.472,4 | -85.159,0 | -122.636,2 | · |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 11,2% hærra mánuðina janúar–nóvember 2006 en sömu mánuði fyrra árs. Í nóvember 2006 var meðalverð erlends gjaldeyris 20,1% hærra en í nóvember árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár á eftir.