Vöruskiptajöfnuður
Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 20,0 milljarða króna og inn fyrir 27,0 milljarða króna fob (29,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 7,0 milljarða króna. Í október 2005 voru vöruskiptin óhagstæð um 6,4 milljarða króna á föstu gengi¹.
Fyrstu tíu mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 193,2 milljarða króna en inn fyrir 302,4 milljarða króna fob (327,9 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 109,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 81,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 27,3 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu tíu mánuði ársins var 12,5 milljörðum eða 6,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 54,4% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 2,8% meira en á sama tíma árið áður. Aukning var í útflutningi á ferskum fiski og frystum flökum en á móti kom samdráttur í útflutningi á frystri rækju. Útfluttar iðnaðarvörur voru 38,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 22,2% meira en á sama tíma árið áður, aðallega vegna hækkunar álverðs. Á móti kom samdráttur í útflutningi á kísiljárni. Einnig varð samdráttur í útflutningi skipa og flugvéla.
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu tíu mánuði ársins var 39,8 milljörðum fob eða 15,2% meira á föstu gengi¹ en árið áður. Rúman helming af þeirri aukningu, eða 20,8 milljarða, má rekja til aukins innflutnings á fjárfestingarvöru sem jókst um 35,1%. Innflutningur hrá- og rekstrarvöru jókst um 29,3%, eða um 18,4 milljarða. Verðhækkun á eldneyti og smurolíu leiddi til 14,3% aukningar, eða um 3,5 milljarða. Innflutningur á neysluvöru, annarrar en mat- og drykkjarvöru, jókst um 8,2% eða 3,5 milljarða en 4,3% aukning varð í innflutningi á mat- og drykkjarvöru. Aftur á móti dróst innflutningur á flutningatækjum saman um 13,1%, eða um 7,2 milljarða, aðallega vegna minni flugvélainnflutnings.
Vöruskiptin við útlönd janúar–október 2006 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2006 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Janúar-október | ||||
Október | Janúar-október | ||||
2005 | 2006 | 2005 | 2006 | ||
Útflutningur alls fob | 18.654 | 19.994 | 180.770 | 193.229 | 6,9 |
Innflutningur alls fob | 25.102 | 26.978 | 262.544 | 302.373 | 15,2 |
Vöruskiptajöfnuður | -6.447 | -6.984 | -81.774 | -109.144 | · |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–október 2005 og 2006 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-október | ||||
Október | Janúar-október | ||||
2005 | 2006 | 2005 | 2006 | ||
Útflutningur alls fob | 16.041,3 | 19.993,7 | 163.918,8 | 193.229,0 | 6,9 |
Sjávarafurðir | 9.425,0 | 10.663,5 | 92.744,6 | 105.116,3 | 2,8 |
Landbúnaðarvörur | 411,1 | 393,3 | 3.024,1 | 3.150,8 | -5,5 |
Iðnaðarvörur | 5.767,6 | 8.369,4 | 55.565,4 | 74.850,8 | 22,2 |
Aðrar vörur | 437,6 | 567,4 | 12.584,7 | 10.111,1 | -27,1 |
Innflutningur alls fob | 21.585,4 | 26.978,0 | 238.070,4 | 302.372,6 | 15,2 |
Matvörur og drykkjarvörur | 1.564,3 | 2.285,7 | 16.213,3 | 18.649,0 | 4,3 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 5.047,8 | 7.555,1 | 57.065,3 | 81.363,2 | 29,3 |
Eldsneyti og smurolíur | 840,2 | 1.181,0 | 22.484,1 | 28.339,0 | 14,3 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 5.980,9 | 6.634,2 | 53.738,9 | 80.034,8 | 35,1 |
Flutningatæki | 3.586,0 | 3.975,5 | 50.104,6 | 47.993,1 | -13,1 |
Neysluvörur ót.a. | 4.518,4 | 5.271,3 | 38.208,4 | 45.599,0 | 8,2 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 47,8 | 75,2 | 255,7 | 394,4 | 39,9 |
Vöruskiptajöfnuður | -5.544,2 | -6.984,3 | -74.151,6 | -109.143,6 | · |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 10,3% hærra mánuðina janúar–október 2006 en sömu mánuði fyrra árs.
Í október 2006 var meðalverð erlends gjaldeyris 16,3% hærra en í október árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár á eftir.
Talnaefni