FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. NÓVEMBER 2007


Vöruskiptajöfnuður

Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 28,3 milljarða króna og inn fyrir tæpa 35 milljarða króna fob (37,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því óhagstæð um 6,6 milljarða króna. Í október 2006 voru vöruskiptin óhagstæð um 8,9 milljarða króna á sama gengi¹.

 Fyrstu tíu mánuðina 2007 voru fluttar út vörur fyrir 238,3 milljarða króna en inn fyrir tæpa 320 milljarða króna fob (346,4 milljarða króna cif). Halli var á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 81,6 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um tæpa 120 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 38,3 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

 Verslun með flugvélar það sem af er árinu hefur nú verið leiðrétt vegna nýrra upplýsinga. Samkvæmt því er vöruskiptahalli í fyrri mánuðum þessa árs 1,75 milljörðum minni en áður var talið. Að auki eru í tölum fyrir janúar-október óvenju miklar leiðréttingar á niðurstöðum fyrri mánaða.

Útflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruútflutnings 39 milljörðum eða 19,6% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44% alls útflutnings og var verðmæti þeirra tæplega 2% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 40% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 28% meira en árið áður. Aukningu útflutnings má einna helst rekja til aukins álútflutnings og aukinnar sölu á skipum og flugvélum. Á móti kom samdráttur í útflutningi á lyfjum og lækningatækjum.

Innflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2007 var verðmæti vöruinnflutnings 0,7 milljarði eða 0,2% meira á föstu gengi¹  en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á mat- og drykkjarvöru og annarri neysluvöru en á móti kom samdráttur í innflutningi á flugvélum og fjárfestingarvöru.

Vöruskiptin við útlönd október 2007
Millj. kr á gengi ársins 2007 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-október
Október  Janúar-október
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 19.640 28.334 199.338 238.343 19,6
Innflutningur alls fob 28.583 34.963 319.230 319.968 0,2
Vöruskiptajöfnuður -8.942 -6.629 -119.892 -81.625 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í október 2006 og 2007
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-október
Október Janúar-október
  2006 2007 2006 2007
Útflutningur alls fob 19.998,3 28.334,2 202.414,9 238.342,9 19,6
Sjávarafurðir 10.664,3 12.848,9 104.945,4 105.054,9 1,7
Landbúnaðarvörur 393,4 444,3 3.148,6 2.734,4 -11,8
Iðnaðarvörur 8.371,9 9.757,4 75.006,1 94.518,9 28,0
Aðrar vörur 568,7 5.283,7 19.314,7 36.034,7 89,4
Innflutningur alls fob 29.103,6 34.963,3 324.157,0 319.968,2 0,2
Matvörur og drykkjarvörur 2.245,5 2.316,8 18.593,3 20.901,1 14,1
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 7.596,5 8.329,6 81.415,6 80.421,8 0,3
Eldsneyti og smurolíur 1.181,0 3.159,5 28.387,2 29.029,5 3,8
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 6.659,6 6.733,5 80.077,9 71.889,2 -8,8
Flutningatæki 6.085,4 7.851,6 69.719,1 66.764,6 -2,8
Neysluvörur ót.a. 5.260,4 6.540,5 45.567,8 50.684,4 12,9
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 75,2 31,9 396,0 277,5 -28,8
Vöruskiptajöfnuður -9.105,2 -6.629,1 -121.742,1 -81.625,2 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,5% lægra mánuðina janúar–október 2007 en sömu mánuði fyrra árs.

Í október 2007 var meðalverð erlends gjaldeyris 1,8% lægra en í október árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út í febrúar næsta ár.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.