Vöruskiptajöfnuður
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 43,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 40,6 milljarða króna fob (44,7 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 3,1 milljarð króna. Í september 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 9,7 milljarða króna á sama gengi.¹
Fyrstu níu mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 341,2 milljarða króna en inn fyrir 297,5 milljarða króna fob (325,2 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 43,8 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 64,9 milljarða á sama gengi.¹ Vöruskiptajöfnuðurinn var því 108,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 128,7 milljörðum eða 27,4% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,5% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 49,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 29,5% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og sjávarafurðum.
Innflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 237,4 milljörðum eða 44,4% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru, flutningatækjum og fjárfestingavöru.
Vöruskiptin við útlönd janúar-september 2009 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2009 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-september | ||||
September | Janúar-september | ||||
2008 | 2009 | 2008 | 2009 | ||
Útflutningur alls fob | 67.472 | 43.687 | 469.920 | 341.248 | -27,4 |
Innflutningur alls fob | 57.793 | 40.585 | 534.865 | 297.497 | -44,4 |
Vöruskiptajöfnuður | 9.679 | 3.102 | -64.945 | 43.751 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-september 2008 og 2009 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-september | ||||
September | Janúar-september | ||||
2008 | 2009 | 2008 | 2009 | ||
Útflutningur alls fob | 49.452,1 | 43.687,2 | 322.326,6 | 341.248,5 | -27,4 |
Sjávarafurðir | 15.382,0 | 19.779,6 | 115.438,2 | 152.359,5 | -9,5 |
Landbúnaðarvörur | 609,5 | 458,4 | 3.670,0 | 5.124,5 | -4,2 |
Iðnaðarvörur | 24.705,1 | 22.445,7 | 164.826,0 | 169.382,2 | -29,5 |
Aðrar vörur | 8.755,4 | 1.003,5 | 38.392,4 | 14.382,2 | -74,3 |
Innflutningur alls fob | 42.358,2 | 40.585,4 | 366.873,7 | 297.497,1 | -44,4 |
Matvörur og drykkjarvörur | 3.448,1 | 3.547,0 | 27.227,4 | 30.873,4 | -22,2 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 13.137,8 | 11.544,2 | 111.498,7 | 94.112,9 | -42,1 |
Eldsneyti og smurolíur | 7.308,0 | 8.267,0 | 43.696,2 | 39.371,8 | -38,2 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 8.086,7 | 8.058,9 | 79.786,7 | 64.572,1 | -44,5 |
Flutningatæki | 3.470,8 | 2.345,1 | 54.214,2 | 23.072,0 | -70,8 |
Neysluvörur ót.a. | 6.871,8 | 6.705,8 | 50.169,5 | 45.036,5 | -38,4 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 34,9 | 117,3 | 280,9 | 458,3 | 11,9 |
Vöruskiptajöfnuður | 7.093,9 | 3.101,8 | -44.547,1 | 43.751,4 | · |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 45,8% hærra mánuðina janúar–september 2009 en sömu mánuði fyrra árs.
Í september 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 36,4% hærra en í september árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.
Talnaefni