FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. OKTÓBER 2009

Vöruskiptajöfnuður
Í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 43,7 milljarða króna og inn fyrir tæpa 40,6 milljarða króna fob (44,7 milljarða króna cif). Vöruskiptin í september, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 3,1 milljarð króna. Í september 2008 voru vöruskiptin hagstæð um 9,7 milljarða króna á sama gengi.¹

Fyrstu níu mánuðina 2009 voru fluttar út vörur fyrir 341,2 milljarða króna en inn fyrir 297,5 milljarða króna fob (325,2 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 43,8 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 64,9 milljarða á sama gengi.¹ Vöruskiptajöfnuðurinn var því 108,7 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruútflutnings 128,7 milljörðum eða 27,4% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 44,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,5% minna en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 49,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 29,5% minna en á sama tíma árið áður. Mestur samdráttur varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls, en einnig var samdráttur í útflutningi á skipum og flugvélum og sjávarafurðum.

Innflutningur
Fyrstu níu mánuði ársins 2009 var verðmæti vöruinnflutnings 237,4 milljörðum eða 44,4% minna á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í innflutningi nær allra liða innflutnings, mest í hrá- og rekstrarvöru, flutningatækjum og fjárfestingavöru.

Vöruskiptin við útlönd janúar-september 2009
Millj. kr á gengi ársins 2009 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, %  Jan.-september
September  Janúar-september
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 67.472 43.687 469.920 341.248 -27,4
Innflutningur alls fob 57.793 40.585 534.865 297.497 -44,4
Vöruskiptajöfnuður 9.679 3.102 -64.945 43.751 .

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-september 2008 og 2009
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-september
September Janúar-september
  2008 2009 2008 2009
Útflutningur alls fob 49.452,1 43.687,2 322.326,6 341.248,5 -27,4
Sjávarafurðir 15.382,0 19.779,6 115.438,2 152.359,5 -9,5
Landbúnaðarvörur 609,5 458,4 3.670,0 5.124,5 -4,2
Iðnaðarvörur 24.705,1 22.445,7 164.826,0 169.382,2 -29,5
Aðrar vörur 8.755,4 1.003,5 38.392,4 14.382,2 -74,3
Innflutningur alls fob 42.358,2 40.585,4 366.873,7 297.497,1 -44,4
Matvörur og drykkjarvörur 3.448,1 3.547,0 27.227,4 30.873,4 -22,2
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.137,8 11.544,2 111.498,7 94.112,9 -42,1
Eldsneyti og smurolíur 7.308,0 8.267,0 43.696,2 39.371,8 -38,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 8.086,7 8.058,9 79.786,7 64.572,1 -44,5
Flutningatæki 3.470,8 2.345,1 54.214,2 23.072,0 -70,8
Neysluvörur ót.a. 6.871,8 6.705,8 50.169,5 45.036,5 -38,4
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 34,9 117,3 280,9 458,3 11,9
Vöruskiptajöfnuður 7.093,9 3.101,8 -44.547,1 43.751,4 ·

¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 45,8% hærra mánuðina janúar–september 2009 en sömu mánuði fyrra árs.

Í september 2009 var meðalverð erlends gjaldeyris 36,4% hærra en í september árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.