FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 29. SEPTEMBER 2004

Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 14,0 milljarða króna og inn fyrir 20,7 milljarða króna fob.  Vöruskiptin í ágúst voru því óhagstæð um 6,7 milljarða króna en í ágúst í fyrra voru þau óhagstæð um 0,8 milljarða á föstu gengi¹. 
     Fyrstu átta mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 129,5 milljarða króna og inn fyrir 156,5 milljarða króna. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 27,0 milljarða en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 6,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 20,3 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu átta mánuði ársins var 6,7 milljörðum eða 5,4% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 61% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,4% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti saltfisks og fersks fisks en á móti kom samdráttur í útflutningi lýsis og frystra flaka. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara var 6,4% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður, aðallega vegna aukningar á útfluttum lyfjum og lækningavörum.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu átta mánuði ársins var 26,9 milljörðum eða 20,8% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Aukning varð í flestum liðum innflutnings. Mest aukning varð í innflutningi á fjárfestingavöru og flutningatækjum, aðallega flugvélum og fólksbílum. Á móti kom minni innflutningur á skipum.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.