Frétt um vöruviðskiptin við útlönd janúar-ágúst 2011 hefur verið leiðrétt en í fréttinni var stuðst við rangar forsendur um gengisbreytingar þegar tölur fyrra árs voru umreiknaðar. Fréttatilkynning ásamt yfirlitstöflum er því birt leiðrétt.
Vöruskiptajöfnuður
Í ágústmánuði voru fluttar út vörur fyrir 56,7 milljarða króna og inn fyrir 45,6 milljarða króna fob (49,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í ágúst, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 11,1 milljarð króna. Í ágúst 2010 voru vöruskiptin hagstæð um 7,5 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu átta mánuðina 2011 voru fluttar út vörur fyrir 397,5 milljarða króna en inn fyrir 331,5 milljarða króna fob (356,8 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 65,9 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 75,6 milljarða á sama gengi¹.
Vöruskiptajöfnuðurinn var því 9,7 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruútflutnings 41,1 milljarði eða 11,5% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 38,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,6% meira en á sama tíma árið áður. Útfluttar iðnaðarvörur voru 56,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 11,5% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og kísiljárns. Einnig varð aukning í útflutningi sjávarafurða.
Innflutningur
Fyrstu átta mánuði ársins 2011 var verðmæti vöruinnflutnings 50,7 milljörðum eða 18,1% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í hrá- og rekstrarvöru, eldsneyti, fjárfestingarvörum og flutningatækjum.
Vöruskiptin við útlönd ágúst 2011 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2011 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-ágúst | ||||
Ágúst | Janúar-ágúst | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 43.864 | 56.696 | 356.385 | 397.462 | 11,5 |
Innflutningur alls fob | 36.390 | 45.641 | 280.807 | 331.537 | 18,1 |
Vöruskiptajöfnuður | 7.475 | 11.055 | 75.578 | 65.925 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-ágúst 2010 og 2011 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-ágúst | ||||
Ágúst | Janúar-ágúst | ||||
2010 | 2011 | 2010 | 2011 | ||
Útflutningur alls fob | 41.874,9 | 56.695,9 | 365.560,5 | 397.462,5 | 11,5 |
Sjávarafurðir | 17.625,9 | 23.933,0 | 142.374,9 | 152.091,9 | 9,6 |
Landbúnaðarvörur | 279,1 | 631,7 | 4.339,4 | 5.293,2 | 25,1 |
Iðnaðarvörur | 22.136,7 | 30.586,7 | 205.978,6 | 223.933,2 | 11,5 |
Aðrar vörur | 1.833,3 | 1.544,5 | 12.867,7 | 16.144,2 | 28,7 |
Innflutningur alls fob | 34.739,4 | 45.640,8 | 288.036,4 | 331.537,3 | 18,1 |
Matvörur og drykkjarvörur | 3.380,2 | 4.601,1 | 28.249,0 | 31.244,8 | 13,5 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 10.480,8 | 16.547,3 | 98.112,3 | 115.907,6 | 21,2 |
Eldsneyti og smurolíur | 6.457,8 | 5.784,7 | 37.796,6 | 44.974,6 | 22,1 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 7.271,1 | 10.750,7 | 66.091,5 | 72.204,6 | 12,1 |
Flutningatæki | 1.665,2 | 1.966,1 | 16.790,9 | 24.115,2 | 47,3 |
Neysluvörur ót.a. | 5.461,6 | 5.940,5 | 40.607,1 | 42.662,5 | 7,8 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 22,6 | 50,5 | 389,1 | 428,0 | 12,8 |
Vöruskiptajöfnuður | 7.135,5 | 11.055,1 | 77.524,1 | 65.925,1 | . |
¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 2,5% lægra mánuðina janúar–ágúst 2011 en sömu mánuði fyrra árs.
Í ágúst 2011 var meðalverð erlends gjaldeyris 4,8% hærra en í ágúst árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.
Talnaefni