FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 28. MAÍ 2004

Vöruskiptajöfnuður
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 16,8 milljarða króna og inn fyrir 20,0 milljarða króna fob.  Vöruskiptin í apríl voru því óhagstæð um 3,3 milljarða króna en í apríl í fyrra voru þau óhagstæð um 2,5 milljarða á föstu gengi¹. 
     Fyrstu fjóra mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 67,7 milljarða króna og inn fyrir 70,9 milljarða króna. Vöruskiptin við útlönd voru því óhagstæð um 3,2 milljarða en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 4,0 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 7,2 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins var 4,3 milljörðum eða 6,8% meira á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 61% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,3% meira en á sama tíma árið áður. Aukning varð í verðmæti frystra loðnuhrogna, saltfisks, fersks fisks og heilfrysts fisks. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara var 5,0% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Útflutningur á áli dróst saman en á móti kom aukning á útfluttum lyfjum og lækningavörum.
 
Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu fjóra mánuði ársins var 11,6 milljörðum eða 19,5% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á fjárfestingarvörum og hrá- og rekstrarvörum en einnig var umtalsverð aukning í innflutningi neysluvara, eldsneytis og smurolía, fólksbíla og flutningatækja til atvinnurekstrar. Á móti kom minni innflutningur á skipum og flugvélum.

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.