FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 26. MARS 2004

Vöruskiptajöfnuður
Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 14,2 milljarða króna og inn fyrir 14,1 milljarð króna fob.  Vöruskiptin í febrúar voru því hagstæð um 0,1 milljarð króna en í febrúar í fyrra voru þau hagstæð um 2 milljarða. 
     Fyrstu tvo mánuði ársins voru fluttar út vörur fyrir 30,8 milljarða króna en inn fyrir 30,5 milljarða króna fob. Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 0,3 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 6,9 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 6,6 milljörðum lakari en á sama tíma árið áður.

Útflutningur
Verðmæti vöruútflutnings fyrstu tvo mánuði ársins var 1,3 milljarði eða 4% minna á föstu gengi1 en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 59% alls útflutnings og var verðmæti þeirra álíka og á sama tíma árið áður. Samdráttur varð í verðmæti frystra flaka en á móti kom að aukning varð í verðmæti heilfrysts fisks. Verðmæti útfluttra iðnaðarvara var 6% minna á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Útflutningur á áli dróst saman en á móti kom aukning á útfluttum lyfjum og lækningavörum.

Innflutningur
Verðmæti vöruinnflutnings fyrstu tvo mánuði ársins var 5,3 milljörðum eða 21% meira á föstu gengi en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í innflutningi á fjárfestingarvörum og hrá- og rekstrarvörum.

Talnaefni
 

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.