FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. MARS 2012

Vöruskiptajöfnuður
Í febrúarmánuði voru fluttar út vörur fyrir 54,2 milljarða króna og inn fyrir 41,6 milljarða króna fob (45,1 milljarð króna cif). Vöruskiptin í febrúar, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 12,6 milljarða króna. Í febrúar 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 8,8 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu tvo mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 101,5 milljarða króna en inn fyrir 78,7 milljarða króna fob (85,1 milljarð króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 22,8 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 16,9 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 5,9 milljörðum króna hagstæðari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings tæpum 13,0 milljörðum eða 14,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 55,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,7% meira en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 40,6% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 32,2% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski og fiskimjöli. Einnig var aukning í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og afurða þess.

Innflutningur
Fyrstu tvo mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 7,2 milljörðum eða 10,0% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í eldsneyti.

Vöruskiptin við útlönd janúar - febrúar 2012
Millj. kr á gengi ársins 2012 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-febrúar
Febrúar  Janúar-febrúar
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 44.486 54.187 88.442 101.475 14,7
Innflutningur alls fob 35.679 41.551 71.546 78.713 10,0
Vöruskiptajöfnuður 8.806 12.636 16.896 22.761 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-febrúar 2011 og 2012
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-febrúar
Febrúar Janúar-febrúar
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 42.807,6 54.186,7 85.154,8 101.474,7 14,7
Sjávarafurðir 15.187,0 23.419,5 30.014,5 41.197,4 32,2
Landbúnaðarvörur 804,1 939,4 1.873,2 2.177,5 11,9
Iðnaðarvörur 25.648,9 28.293,3 50.855,8 55.813,8 5,7
Aðrar vörur 1.167,7 1.534,5 2.411,3 2.286,0 -8,7
Innflutningur alls fob 34.333,4 41.550,6 68.887,2 78.713,3 10,0
Matvörur og drykkjarvörur 3.131,6 3.659,2 5.771,2 7.136,7 19,1
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 12.315,3 13.636,2 23.450,5 25.481,9 4,6
Eldsneyti og smurolíur 3.939,7 5.542,4 9.138,0 11.315,2 19,2
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 6.832,0 9.330,2 16.448,8 18.274,6 7,0
Flutningatæki 3.488,8 4.064,7 5.406,7 6.315,5 12,5
Neysluvörur ót.a. 4.581,5 5.289,4 8.607,4 10.091,8 12,9
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 44,3 28,4 64,5 97,7 45,8
Vöruskiptajöfnuður 8.474,2 12.636,2 16.267,6 22.761,4 .
 

¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 3,9% hærra mánuðina janúar–febrúar 2012 en sömu mánuði fyrra árs.

Í febrúar 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 3,9% hærra en í febrúar árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.