Vöruskiptajöfnuður
Í júlímánuði voru fluttar út vörur fyrir 47,4 milljarða króna og inn fyrir 45,0 milljarða króna fob (48,4 milljarða króna cif). Vöruskiptin í júlí, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 2,4 milljarða króna. Í júlí 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 9,2 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu sjö mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 361,8 milljarða króna en inn fyrir 326,6 milljarða króna fob (351,4 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 35,2 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 57,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 22,5 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 9,5 milljörðum eða 2,7% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 52,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 5,7% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 17,5% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski, fiskimjöli og heilum frystum fiski.
Innflutningur
Fyrstu sjö mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings tæpum 32 milljörðum eða 10,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í flutningatækjum og eldsneyti.
Vöruskiptin við útlönd janúar - júlí 2012 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2012 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-júlí | ||||
Júlí | Janúar-júlí | ||||
2011 | 2012 | 2011 | 2012 | ||
Útflutningur alls fob | 50.387 | 47.377 | 352.317 | 361.824 | 2,7 |
Innflutningur alls fob | 41.149 | 44.998 | 294.636 | 326.628 | 10,9 |
Vöruskiptajöfnuður | 9.238 | 2.379 | 57.681 | 35.197 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-júlí 2011 og 2012 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-júlí | ||||
Júlí | Janúar-júlí | ||||
2011 | 2012 | 2011 | 2012 | ||
Útflutningur alls fob | 51.462,1 | 47.376,6 | 343.020,9 | 361.824,4 | 2,7 |
Sjávarafurðir | 22.659,1 | 22.338,6 | 128.159,2 | 154.629,7 | 17,5 |
Landbúnaðarvörur | 422,5 | 575,2 | 4.179,7 | 5.806,3 | 35,3 |
Iðnaðarvörur | 27.171,7 | 21.311,2 | 196.065,2 | 189.868,4 | -5,7 |
Aðrar vörur | 1.208,9 | 3.151,6 | 14.616,8 | 11.520,0 | -23,3 |
Innflutningur alls fob | 42.027,0 | 44.997,5 | 286.861,7 | 326.627,7 | 10,9 |
Matvörur og drykkjarvörur | 4.019,3 | 4.628,6 | 26.643,0 | 30.096,7 | 10,0 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 13.649,8 | 11.980,8 | 99.289,9 | 96.909,3 | -5,0 |
Eldsneyti og smurolíur | 8.394,1 | 8.620,6 | 39.190,0 | 49.610,8 | 23,3 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 7.966,3 | 10.833,2 | 61.355,3 | 68.571,3 | 8,8 |
Flutningatæki | 2.519,5 | 3.145,5 | 23.273,2 | 41.923,1 | 75,4 |
Neysluvörur ót.a. | 5.440,4 | 5.461,7 | 36.733,0 | 38.781,3 | 2,8 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 37,6 | 327,1 | 377,4 | 735,3 | 89,7 |
Vöruskiptajöfnuður | 9.435,1 | 2.379,2 | 56.159,2 | 35.196,7 | . |
¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 2,7% hærra mánuðina janúar–júlí 2012 en sömu mánuði fyrra árs.
Í júlí 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 2.1% lægra en í júlí árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.
Talnaefni