FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 30. NÓVEMBER 2012


Vöruskiptajöfnuður
Í októbermánuði voru fluttar út vörur fyrir 63,3 milljarða króna og inn fyrir 48 milljarða króna fob (52 milljarða króna cif). Vöruskiptin í október, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 15,2 milljarða króna. Í október 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 8,3 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu tíu mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 526,8 milljarða króna en inn fyrir 461,8 milljarða króna fob (tæpa 497 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam 65,1 milljarði en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 90,7 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 25,6 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 4,3 milljörðum eða 0,8% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 51,9% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4,4% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 43,5% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 9,3% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski. Á móti kom samdráttur í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og álafurða.

Innflutningur
Fyrstu tíu mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 29,9 milljörðum eða 6,9% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning innflutnings varð mest í flutningatækjum en á móti kom samdráttur í verðmæti innflutnings hrá- og rekstrarvara, aðallega súráls.

Vöruskiptin við útlönd janúar - október 2012
Millj. kr á gengi ársins 2012 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-október
Október  Janúar-október
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 54.664 63.286 522.527 526.848 0,8
Innflutningur alls fob 46.321 48.044 431.846 461.773 6,9
Vöruskiptajöfnuður 8.343 15.242 90.681 65.075 .

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-október 2011 og 2012
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-október
Október Janúar-október
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 52.678,0 63.286,0 513.035,6 526.848,1 0,8
Sjávarafurðir 25.114,4 29.007,6 205.761,1 229.012,3 9,3
Landbúnaðarvörur 1.358,8 1.565,9 6.627,7 8.856,6 31,2
Iðnaðarvörur 24.591,9 31.092,4 280.699,1 273.295,6 -4,4
Aðrar vörur 1.612,9 1.620,0 19.947,7 15.683,6 -22,8
Innflutningur alls fob 44.638,3 48.044,1 424.001,6 461.772,9 6,9
Matvörur og drykkjarvörur 4.433,8 5.141,9 39.938,6 42.111,7 3,5
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 13.821,5 14.984,2 141.857,8 135.817,7 -6,0
Eldsneyti og smurolíur 6.430,8 6.017,0 64.254,9 72.173,2 10,3
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 11.704,2 10.967,3 92.770,8 96.097,4 1,7
Flutningatæki 2.237,8 3.513,2 29.797,1 56.488,6 86,1
Neysluvörur ót.a. 5.991,1 7.350,9 54.852,3 57.719,3 3,3
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 19,1 69,7 530,1 1.364,9 .
Vöruskiptajöfnuður 8.039,7 15.241,9 89.033,9 65.075,2 .


¹ Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 1,9% hærra mánuðina janúar–október 2012 en sömu mánuði fyrra árs.

Í október 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 3,8% hærra en í október árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.