Vöruskiptajöfnuður
Í nóvembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 54,6 milljarða króna og inn fyrir tæpa 44 milljarða króna fob (47,8 milljarða króna cif). Vöruskiptin í nóvember, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 10,6 milljarða króna. Í nóvember 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 8,3 milljarða króna á sama gengi¹.
Fyrstu ellefu mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 581,3 milljarða króna en inn fyrir 505,7 milljarða króna fob (544,7 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam tæpum 75,7 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um tæpa 99 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 23,3 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
Útflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 2,7 milljörðum eða 0,5% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 52% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 4% minna en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 43,3% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 7,6% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski. Á móti kom samdráttur í verðmæti útflutnings iðnaðarvara, aðallega áls og álafurða.
Innflutningur
Fyrstu ellefu mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 26 milljörðum eða 5,4% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning innflutnings varð mest í flutningatækjum en á móti kom samdráttur í verðmæti innflutnings hrá- og rekstrarvara.
Vöruskiptin við útlönd janúar - nóvember 2012 | |||||
Millj. kr á gengi ársins 2012 | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-nóvember | ||||
Nóvember | Janúar-nóvember | ||||
2011 | 2012 | 2011 | 2012 | ||
Útflutningur alls fob | 56.150 | 54.615 | 578.680 | 581.348 | 0,5 |
Innflutningur alls fob | 47.884 | 43.967 | 479.691 | 505.689 | 5,4 |
Vöruskiptajöfnuður | 8.266 | 10.648 | 98.989 | 75.659 | . |
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-nóvember 2011 og 2012 | |||||
Millj. kr. á gengi hvors árs | Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-nóvember | ||||
Nóvember | Janúar-nóvember | ||||
2011 | 2012 | 2011 | 2012 | ||
Útflutningur alls fob | 53.409,6 | 54.614,8 | 566.445,1 | 581.348,4 | 0,5 |
Sjávarafurðir | 23.471,0 | 23.136,9 | 229.232,1 | 251.987,5 | 7,6 |
Landbúnaðarvörur | 1.163,8 | 1.451,4 | 7.791,6 | 10.308,1 | 29,5 |
Iðnaðarvörur | 27.579,5 | 29.007,9 | 308.278,6 | 302.350,8 | -4,0 |
Aðrar vörur | 1.195,2 | 1.018,5 | 21.142,9 | 16.702,1 | -22,7 |
Innflutningur alls fob | 45.547,3 | 43.966,9 | 469.548,9 | 505.689,0 | 5,4 |
Matvörur og drykkjarvörur | 4.198,6 | 4.275,2 | 44.137,2 | 46.386,2 | 2,9 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 14.092,0 | 12.431,5 | 155.949,8 | 148.211,2 | -7,0 |
Eldsneyti og smurolíur | 6.585,5 | 6.743,9 | 70.840,4 | 78.917,0 | 9,0 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 10.733,3 | 10.586,2 | 103.504,2 | 106.682,3 | 0,9 |
Flutningatæki | 2.847,2 | 2.765,2 | 32.644,2 | 59.247,8 | 77,7 |
Neysluvörur ót.a. | 6.938,2 | 7.116,2 | 61.790,5 | 64.830,9 | 2,7 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 152,4 | 48,8 | 682,5 | 1.413,7 | . |
Vöruskiptajöfnuður | 7.862,3 | 10.647,8 | 96.896,2 | 75.659,4 | . |
¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 2,2% hærra mánuðina janúar–nóvember 2012 en sömu mánuði fyrra árs.
Í nóvember 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 5,1% hærra en í nóvember árið áður.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.