FRÉTT UTANRÍKISVERSLUN 31. MAÍ 2012

Vöruskiptajöfnuður
Í aprílmánuði voru fluttar út vörur fyrir 50,2 milljarða króna og inn fyrir 40,7 milljarða króna fob (44,2 milljarða króna cif). Vöruskiptin í apríl, reiknuð á fob verðmæti, voru því hagstæð um 9,5 milljarða króna. Í apríl 2011 voru vöruskiptin hagstæð um 3,4 milljarða króna á sama gengi¹.

Fyrstu fjóra mánuðina 2012 voru fluttar út vörur fyrir 206,2 milljarða króna en inn fyrir 178,3 milljarða króna fob (192,0 milljarða króna cif). Afgangur var því á vöruskiptunum við útlönd, reiknað á fob verðmæti, sem nam tæpum 28 milljörðum en á sama tíma árið áður voru þau hagstæð um 33,8 milljarða á sama gengi¹. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 5,8 milljörðum króna lakari en á sama tíma árið áður.
  
Útflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruútflutnings 13,5 milljörðum eða 7,0% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Iðnaðarvörur voru 53,7% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 3,2% meira en á sama tíma árið áður. Sjávarafurðir voru 42,0% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 22,4% meira en á sama tíma árið áður. Mest aukning varð í útflutningi sjávarafurða, aðallega á ferskum fiski og fiskimjöli.

Innflutningur
Fyrstu fjóra mánuði ársins 2012 var verðmæti vöruinnflutnings 19,3 milljörðum eða 12,2% meira á föstu gengi¹ en á sama tíma árið áður. Aukning á verðmæti innflutnings varð mest í flutningatækjum og eldsneyti.

Vöruskiptin við útlönd janúar - apríl 2012
Millj. kr á gengi ársins 2012 Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % jan-apríl
Apríl  Janúar-apríl
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 42.495 50.158 192.718 206.246 7,0
Innflutningur alls fob 39.078 40.673 158.958 178.273 12,2
Vöruskiptajöfnuður 3.416 9.485 33.760 27.972 .

 

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar-apríl 2011 og 2012
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra ári á föstu gengi, % Jan.-apríl
Apríl Janúar-apríl
  2011 2012 2011 2012
Útflutningur alls fob 40.252,5 50.157,7 184.278,5 206.245,7 7,0
Sjávarafurðir 16.945,3 20.348,4 67.658,9 86.611,1 22,4
Landbúnaðarvörur 528,9 772,9 2.824,6 3.864,1 30,8
Iðnaðarvörur 21.550,7 27.247,9 102.635,5 110.753,0 3,2
Aðrar vörur 1.227,6 1.788,4 11.159,5 5.017,5 -57,0
Innflutningur alls fob 37.016,5 40.673,1 151.996,7 178.273,4 12,2
Matvörur og drykkjarvörur 3.476,1 4.578,0 13.204,7 15.727,3 13,9
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. 15.491,3 13.345,5 55.858,4 56.355,8 -3,5
Eldsneyti og smurolíur 1.944,6 5.491,4 16.449,1 23.581,5 37,1
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) 7.285,8 8.780,3 33.670,2 38.300,4 8,8
Flutningatæki 3.682,2 3.469,2 12.644,5 22.502,6 70,2
Neysluvörur ót.a. 5.083,8 4.965,7 20.034,5 21.595,1 3,1
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) 52,8 43,0 135,4 210,8 48,9
Vöruskiptajöfnuður 3.236,0 9.484,7 32.281,8 27.972,3 ·

¹Miðað er við meðalgengi á vöruviðskiptavog. Á þann mælikvarða er meðalverð erlends gjaldeyris 4,6% hærra mánuðina janúar–apríl 2012 en sömu mánuði fyrra árs.

Í apríl 2012 var meðalverð erlends gjaldeyris 5,6% hærra en í apríl árið áður.

Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta þær breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar niðurstöður fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.

 

Talnaefni

Nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar eru veittar í síma 528 1100 , netfang upplysingar@hagstofa.is

Deila


Öllum eru heimil afnot af fréttatilkynningunni. Vinsamlegast getið heimildar.