Á árinu 2016 voru fluttar út vörur fyrir 537,4 milljarða króna fob en inn fyrir 645,6 milljarða króna fob, 687,6 milljarða króna cif. Halli var því á vöruviðskiptum við útlönd, reiknað á fob verðmæti út- og innflutnings, sem nam 108,2 milljörðum króna en 30,6 milljarða króna halli var árið 2015 á gengi hvors árs.¹
Verðmæti vöruútflutnings minnkaði um 14,2% frá fyrra ári, á gengi hvors árs, og verðmæti vöruinnflutnings minnkaði um 1,7%. Hlutur iðnaðarvöru var 50,3% alls vöruútflutnings og hlutur sjávarafurða var 43,2%.
Í vöruinnflutningi voru stærstu vöruflokkarnir hrá- og rekstrarvörur með 26,1% hlutdeild, fjárfestingarvörur með 21,8% hlutdeild og flutningatæki með 18,6% hlutdeild. Stærstu viðskiptalönd voru Holland (Niðurland) í vöruútflutningi og Noregur í vöruinnflutningi og var EES þýðingarmesta markaðssvæðið, jafnt í vöruútflutningi sem vöruinnflutningi.
Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar–desember 2015 og 2016 | |||
Breytingar frá fyrra | |||
Jan.–desember | ári á gengi hvors árs, | ||
2015 | 2016 | % jan.–desember | |
Útflutningur alls fob | 626.091,9 | 537.444,8 | -14,2 |
Sjávarafurðir | 264.665,4 | 232.237,9 | -12,3 |
Landbúnaðarvörur | 13.267,6 | 16.844,5 | 27,0 |
Iðnaðarvörur | 331.060,2 | 270.407,9 | -18,3 |
Aðrar vörur | 17.098,7 | 17.954,6 | 5,0 |
Innflutningur alls fob | 656.661,9 | 645.611,6 | -1,7 |
Matvörur og drykkjarvörur | 65.036,8 | 57.418,8 | -11,7 |
Hrávörur og rekstrarvörur, ót.a. | 184.882,8 | 168.494,0 | -8,9 |
Eldsneyti og smurolíur | 83.123,8 | 69.867,6 | -15,9 |
Fjárfest.vörur (þó ekki flutn.tæki) | 137.382,1 | 140.651,0 | 2,4 |
Flutningatæki | 103.893,4 | 120.118,3 | 15,6 |
Neysluvörur ót.a. | 81.398,8 | 88.542,6 | 8,8 |
Vörur ót.a (t.d. endursendar vörur) | 944,2 | 519,4 | -45,0 |
Vöruskiptajöfnuður | -30.570,1 | -108.379,3 | . |
Við minnum á breytta birtingu á töflum um vöruviðskipti á vef Hagstofunnar.
¹Hagstofa Íslands birtir ekki lengur tölur um vöruskipti á föstu gengi. Á vef Hagstofu Íslands er að finna töflu um hlutfall einstakra gjaldmiðla í vöruskiptum.
Mánaðarlegar tölur um utanríkisverslun líðandi árs eru endurskoðaðar allt árið og því geta tölur fyrri mánaða árs breyst með útgáfu nýrra mánaðartalna. Endanlegar tölur fyrir hvert ár eru gefnar út á vormánuðum næsta ár á eftir.